Sport

Öryggisvörðurinn átti bestu tæklinguna | Myndbönd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kansas City Chiefs fór illa með Denver Broncos í NFL-deildinni á jóladag og það voru bókstaflega allir starfsmenn Chiefs í stuði þann dag.

Það var nefnilega öryggisvörður sem stal senunni er hann elti uppi stuðningsmann Broncos sem hafði hlaupið inn á völlinn.

Öryggisvörðurinn tæklaði áhorfandann með slíkum stæl að leitun er að öðru eins. Sjá má tæklinguna hér að neðan.

Chiefs vann leikinn, 33-10, og meistarar Denver fara því ekki í úrslitakeppnina í ár. Nýir meistarar verða krýndir á nýju ári.

 

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×