Enski boltinn

Inter vill fá Lucas

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lucas ásamt Jordan Henderson.
Lucas ásamt Jordan Henderson. vísir/getty
Ítalska félagið Inter hefur sýnt mikinn áhuga á því að fá miðjumanninn Lucas Leiva frá Liverpool.

Inter vill fá Lucas lánaðan út leiktíðina en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Jürgen Klopp, stjóra Liverpool, í vetur.

Það hefur enginn leikmaður í hópi Liverpool verið lengur hjá félaginu en Lucas en hann til félagsins frá Gremio árið 2007.

Hann á að baki 324 leiki fyrir liðið en hefur aðeins komist í liðið þrisvar á þessari leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×