Enski boltinn

Conte bauð blaðamönnum upp á bjór

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
„Allir á barinn, ég splæsi.“ Conte stígur ekki feilspor þessa dagana.
„Allir á barinn, ég splæsi.“ Conte stígur ekki feilspor þessa dagana. vísir/getty
Antonio Conte, stjóri Chelsea, fer mikinn bæði innan og utan vallar þessa dagana.

Svo létt var yfir Conte á blaðamannafundinum fyrir leik Chelsea og Bournemouth að ítalski stjórinn bauð blaðamönnum á barinn eftir fundinn.

Farið var út á næsta bar þar sem Conte splæsti bjór á línuna.

Hann spjallaði svo við blaðamennina sem sögðu hann hafa verið mjög opinn og skemmtilegan.

Chelsea vann svo Bournemouth og er búið að vinna tólf leiki í röð sem er félagsmet. Því eðlilega létt yfir Conte.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×