Enski boltinn

Hazard í hóp með Eið Smára

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hazard á vítapunktinum.
Hazard á vítapunktinum. vísir/getty
Eden Hazard, leikmaður Chelsea, komst í dag í hóp þeirra leikmanna sem hafa skorað 50 mörk eða fleiri fyrir Chelsea.

Hazard skoraði annað mark Chelsea gegn Bournemouth, en leikurinn stendur yfir núna. Mark Hazard kom af vítapunktinum, en áður hafði Pedro komið Chelsea yfir.

Þetta var 50. mark Hazard fyrir Chelsea, en hann er sjötti leikmaðurinn til að gera það. Hinir eru Frank Lampard, Didier Drogba, Jimmy Floyd Hasselbaink, Gianfranco Zola og Eiður Smári Guðjohnsen.

Hazard kom til Chelsea árið 2012 og hefur leikið rúmlega 150 leiki fyrir félagið, en Chelsea er á leið að vinna sinn tólfta leik í röð í ensku úrvalsdeildinni haldi liðið út gegn Bournemouth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×