Enski boltinn

Foster framlengdi á jólunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Foster lék átta landsleiki fyrir England á sínum tíma.
Foster lék átta landsleiki fyrir England á sínum tíma. vísir/getty
Markvörðurinn Ben Foster hefur skrifað undir nýjan tveggja og hálfs árs samning við enska úrvalsdeildarliðið West Brom.

Foster hefur leikið með West Brom frá árinu 2011 en hann kom til liðsins frá Birmingham City. Þar áður lék Foster með Manchester United.

Foster hefur leikið 161 leik fyrir West Brom og haldið hreinu í 41 þeirra.

Foster hefur leikið alla 17 leiki West Brom í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Liðið er í 8. sæti deildarinnar með 23 stig.

Næsti leikur West Brom er gegn Arsenal á Emirates á öðrum degi jóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×