Enski boltinn

Ekkert fær Chelsea stöðvað | Sjáðu mörkin

Chelsea vann sinn tólfta leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann 3-0 sigur á Bournemouth á heimavelli.

Chelsea hefur verið á ótrúlegu skriði og fátt fær þá stöðvað þessa dagana. Pedro kom þeim yfir á 24. mínútu áður en Hazard tvöfaldaði forystuna í síðari hálfleik.

Pedro Rodriguez rak svo síðasta naglann í líkkistu Bournemouth þegar hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark Chelsea.

Lokatölur 3-0 og tólfti sigur Chelsea í röð, en þeir eru með níu stiga forystu á Liverpool sem á leik til góða. Chelsea hafa haldið hreinu í tíu af þessum tólf sigurleikjum og einungis fengið á sig tvö mörk.

Bournemouth siglir lygnan sjó, en þeir eru í þrettánda sæti deildarinnar með 21 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×