Erlent

Sprenging í flugeldaverksmiðju nærri Mexíkó-borg

Birgir Olgeirsson skrifar
Myndband frá vettvangi sýnir nokkuð vel hversu miklar hamfarir er um að ræða.
Myndband frá vettvangi sýnir nokkuð vel hversu miklar hamfarir er um að ræða.
Að minnsta kosti sextíu slösuðust þegar sprenging varð í flugeldaverksmiðju nærri Mexíkó-borg í kvöld. Verksmiðjan er í Tultepec, um fjörutíu kílómetrum norður af Mexíkó-borg, þar sem flugeldagerð er stór iðnaður.

Björgunarstarf er í fullum gangi þegar þetta er ritað en myndband frá vettvangi sýnir nokkuð vel hversu miklar hamfarir er um að ræða. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×