Erlent

Árásarmaðurinn í Sviss fannst látinn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Af vettvangi.
Af vettvangi. Vísir/EPA
Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið þrjár manneskjur í gær við bænahús múslíma í borginni Zurich í Sviss fannst látinn nærri árásarstaðnum. Þetta kemur fram í upplýsingum frá lögreglu. CNN greinir frá.

Telur lögreglan að maðurinn hafi framið sjálfsmorð. Ekki hefur verið komist að því hvað manninum gekk til, hvað hann hét eða hvort hann hafi verið tengdur einhverjum hryðjuverkasamtökum.

Lögreglan segir að rannsókn málsins sé á algjöru frumstigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×