Enski boltinn

Carragher blótaði stuðningsmönnum Everton | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jamie Carragher náðist á myndband þar sem hann var að blóta stuðningsmönnum Everton, skömmu fyrir grannaslag liðsins gegn Liverpool í gær.

Carragher, sem lék lengi með Liverpool, er sérfræðingur Sky Sports ásamt Gary Neville, fyrrum leikmanni Manchester United, sem tók umrætt myndband án vitundar Carragher og birti á Instagram-síðunni sinni.

Svo virtist sem að Carragher var ákveða að hitta einhvern þegar hann kallaði stuðningsmenn Everton „litla bastarða,“ eins og fjallað hefur verið um í enskum fjölmiðlum í dag.

Allt virðist þetta hafi farið fram í góðlátlegu gríni þeirra á milli eins og sjá má hér fyrir neðan.

Preparation for the derby ' Mersey Style ' Those little b@@@@@ds' outside !!!

A video posted by Gary Neville (@gneville2) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×