Enski boltinn

Lukkugripurinn Mustafi klár í slaginn á ný

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Shkodran Mustafi, varnarmaður Arsenal, er klár í slaginn eftir meiðsli og getur verið með Skyttunum þegar þær mæta Crystal Palace á morgun.

Mustafi meiddist aftan í læri í 3-1 sigri Arsenal á Stoke City 10. desember og missti í kjölfarið af þremur leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal tapaði tveimur þeirra og vann einn.

Stuðningsmenn Arsenal geta glaðst yfir endurkomu Mustafis en Skytturnar hefur ekki tapað í þeim 17 leikjum sem Þjóðverjinn hefur leikið fyrir félagið.

Arsenal hefur unnið níu af 12 leikjum sem Mustafi hefur leikið í ensku úrvalsdeildinni og gert þrjú jafntefli.

Mustafi kom til Arsenal frá Valencia í haust fyrir tæpar 35 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×