Enski boltinn

Liverpool fær ekki að kaupa Schmeichel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kasper Schmeichel.
Kasper Schmeichel. vísir/getty
Um það hefur verið slúðrað síðustu daga að Liverpool ætli sér að reyna að kaupa Kasper Schmeichel í janúar.

Þessi magnaði markvörður Englandsmeistara Leicester City er nýbúinn að skrifa undir nýjan samning við félagið og er ekki til sölu segir Claudio Ranieri, stjóri Leicester.

„Kasper er samningsbundinn og það kemur ekki til greina að selja hann. Við þurfum ekki á peningunum að halda. Því miður fyrir Liverpool verður félagið að vinna titilinn án Kasper,“ sagði Ranieri.

Báðir markverðir Liverpool - Simon Mignolet og Loris Karius - hafa verið mikið gagnrýndir í vetur og margir stuðningsmenn félagsins vilja að félagið kaupi nýjan og öflugri markvörð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×