Sport

Gat ekki hætt að knúsa Cam Newton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ein fallegasta jólasagan úr NFL-deildinni kom í gær þegar besti leikmaður deildarinnar í fyrra, Cam Newton, heimsótti hjartveikan tíu ára strák á spítala.

Hinn tíu ára gamli Austin Deckard er með alvarlegan hjartasjúkdóm og hans heitasta ósk um jólin var að fá að hittauppáhaldsleikmann sinn, Cam Newton, sem er leikstjórnandi Carolina Panthers.

Kennari Deckard greindi frá ósk drengsins á Twitter og sagðist treysta á mátt samfélagsmiðla. Sá máttur er mikill og skilaboðin komust til Newton sem nýtti frídaginn sinn í að heimsækja Deckard.

Drengnum var ekki sagt frá því að von væri á Cam og viðbrögð hans þegar Cam mætti á sjúkrahúsið voru ekkert minna en yndisleg.

Eftir að hafa verið feiminn fyrstu sekúndurnar tók hann utan um Cam og vildi ekki sleppa. Þessi óvænta heimsókn kom degi áður en drengurinn fór í erfiða og hættulega aðgerð.

Sjá má þessa fallegu stund hér að ofan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×