Enski boltinn

Úr hitanum í hörkuna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hörður Björgvin hefur spilað hverja einustu mínútu í ensku B-deildinni á tímabilinu.
Hörður Björgvin hefur spilað hverja einustu mínútu í ensku B-deildinni á tímabilinu. vísir/getty
Hörður Björgvin Magnússon stökk út í óvissuna þegar hann samdi við enska B-deildarliðið Brist­ol City í sumar. Hann hafði þá verið á mála hjá Juventus á Ítalíu í sex ár, en síðustu þrjú árin spilað sem lánsmaður með Spezia og Cesena í Serie B.

Þrátt fyrir ungan aldur og mikla samkeppni vann hann sér sæti í íslenska landsliðinu árið 2014. Hann var með í för þegar Ísland spilaði á EM í Frakklandi í sumar sem var vafalaust dýrmæt reynsla fyrir Hörð, þrátt fyrir að hann hafi ekkert spilað.

Hann segir að það hafi ekki verið sjálfsagt að skipta yfir úr „hitanum og þægindunum á Ítalíu“, eins og hann orðar það sjálfur, yfir í „kuldann og hörkuna í Englandi“.

Okkar tími mun koma aftur

Hörður Björgvin hefur spilað hverja einustu mínútu í B-deildinni í vetur, alla 23 leikina. Eftir góða byrjun hefur liðið gefið eftir og unnið aðeins einn af síðustu átta leikjum sínum. Hinir sjö leikirnir töpuðust allir og allir nema einn með eins marks mun.

„Við erum með yngsta liðið í deildinni og eftir þessa flottu byrjun hefur þetta verið fljótt að breytast. Þannig er þessi deild – allir geta unnið alla – en ég veit að okkar tími mun koma aftur og við fáum nokkra sigra í röð,“ segir Hörður Björgvin í samtali við Fréttablaðið.

Hann var sjálfur valinn besti leikmaður Bristol City á fyrri hluta tímabilsins af staðarblaðinu Bristol Post og hann segir það ánægjuleg tíðindi.

„Það sýnir að ég er að gera eitthvað rétt og það verður allt léttara þegar stuðningsmenn og blaðamenn eru ánægðir með mann,“ segir Hörður sem gerði þriggja ára samning við Bristol City í sumar.

„Ég veit ekkert hvað gerist í framtíðinni og hvort það séu tilboð á leiðinni í mig. En ég vil fyrst og fremst standa mig vel fyrir félagið og sýna að ég sé nógu góður til að geta tekið skrefið upp á við og spilað í ensku úrvalsdeildinni.“

Hörður Björgvin hefur fengið góða dóma fyrir frammistöðu sína í vetur.vísir/getty
Spila best sem miðvörður

Hörður Björgvin hefur alla tíð spilað sem miðvörður með félögum sínum, þó svo að hann hafi unnið sér sæti í landsliðinu sem vinstri bakvörður.

„Ég er alls ekki hér til að spila sem vinstri bakvörður. Bristol City keypti mig sem miðvörð og það er mín besta staða. Ég fæ þó ákveðið frelsi til að spila úr vörninni og það á að vera hægt að nýta mig til að gefa stungusendingar á framherja og fleira slíkt. Það gefur mér ákveðna sérstöðu enda hugsar hinn dæmigerði enski varnarmaður fyrst og fremst um að koma boltanum í burtu,“ segir hann.

Hörður Björgvin sýndi á Ítalíu að hann er frábær spyrnumaður og stórhættulegur í aukaspyrnum. Hann hefur nokkrum sinnum komist nálægt því að skora úr aukaspyrnum á Englandi.

„Það er stutt í að það komi en fyrst og fremst er ég að hugsa um að standa mig í vörninni. Hitt kemur með tíð og tíma.“

Bíð eftir tækifærinu

Ljóst er að samkeppnin um stöðu miðvarða í íslenska landsliðinu er hörð enda hafa þeir Ragnar Sigurðsson og Kári Árnason staðið sig frábærlega undanfarin ár. Hörður Björgvin segist sáttur við að bíða eftir tækifærinu með landsliðinu.

„Það koma nýjar kynslóðir upp í landsliðinu reglulega og ég hef fyrst og fremst verið ánægður með að fá tækifæri að vera hluti af þessu góða landsliði. Ég er mjög rólegur yfir minni stöðu í landsliðinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×