Fótbolti

Neymar gefur út sitt fyrsta lag

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fyrst kom ljósa hárið og nú er það tónlistin. Hvað næst hjá Neymar?
Fyrst kom ljósa hárið og nú er það tónlistin. Hvað næst hjá Neymar? vísir/getty
Einn besti knattspyrnumaður heims, Neymar, ætlar að reyna fyrir sér í tónlistarheiminum.

Hann hefur staðfest að lagið „Neymusico“ sé væntanlegt en það verður frumraun Brasilíumannsins í tónlistarheiminum. Hann mun gefa lagið út á Facebook-síðu sinni.

Neymar er lifandi ungur maður sem hefur gaman af því að prófa nýja hluti.

Hann hitti Íslandsvininn Justin Bieber í Las Vegas fyrr í sumar og það gæti hafa haft einhver áhrif á hann. Að hann hafi ákveðið að taka slaginn og gefa út lag.

Brasilíumanninum er fullalvara með þessu og hann hefur meðal annars verið að læra á píanó síðustu mánuði.

Nú bíður heimurinn spenntur eftir laginu sem kemur síðar í þessari viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×