Viðskipti innlent

Isavia hagnaðist um 1,6 milljarða

Samúel Karl Ólason skrifar
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. Vísir
Fyrirtækið Isavia hagnaðist um 1.620 milljónir króna á fyrri helmingi ársins. Alls voru tekjur fyrirtækisins 14.408 milljónir og heildarafkoma eftir skatta 1.667 milljónir. Rekstrarafkoma Isavia jókst um 30 prósent á milli ára.

Heildarafkoma jókst um 1.127 milljónir króna á milli ára en í tilkynningu frá Isavia segir að þar af megi rekja 670 milljónir til gengisáhrifa af erlendum fjáreignum og skuldum. Rekstartekjur voru 2.953 milljónum hærri en á sama tímabili í fyrra.

Í tilkynningunni segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, að rekstarafkoma sé í takt við áætlanir félagsins.

„Uppfærð farþegaspá Keflavíkurflugvallar sem félagið kynnti í febrúar síðastliðnum gefur þó tilefni til að ætla að afkoma félagsins fyrir árið í heild verði nokkuð betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Isavia hefur lagt í kostnaðarsamar aðgerðir til að bregðast við fádæma vexti á Keflavíkurflugvelli og það er mjög ánægjulegt að sjá á sama tíma hversu vel hefur tekist til við að standa vörð um arðsemi þess fjármagns sem eigandi félagsins, íslenska ríkið, hefur bundið í rekstrinum.

Isavia kynnti á dögunum vetraráætlun Keflavíkurflugvallar þar sem sætaframboð eykst á milli ára um hátt í 60%. Það er afar ánægjulegt að vetrarferðamennskan skuli aukast þetta mikið og ég er afar stoltur af þætti Isavia í þeim vexti en félagið hefur lagt sín lóð á vogarskálarnar með öflugri markaðssetningu gagnvart flugfélögum og hvatakerfi sem veitir flugfélögum, sem hefja flug allt árið, afslátt af notendagjöldum.“

34 prósent fjölgun farþega

Um 2,7 milljónir farþega fóru um Keflavíkurflugvöll á fyrri hluta ársins og er það aukning um 34 prósent. Það er svipaður fjöldi og fór um flugvöllinn á öllu síðasta ári. Í heildina gerir Isavia ráð fyrir að fjöldi farþega á árinu verði um 6,7 milljónir.

LYKILTÖLUR ÚR HÁLFSÁRSUPPGJÖRI 2016

Tekjur: 14.408 milljónir króna

Rekstrarhagnaður: 1.620 milljónir króna

Heildarafkoma eftir skatta: 1.667 milljónir króna

Handbært fé: 5.129 milljónir króna

Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum: 6.243 milljónir króna

Eigið fé í lok tímabils: 21.8






Fleiri fréttir

Sjá meira


×