Tapið á móti Hamri var kveðjuleikur Baldurs | Góður tími til að finna nýjan þjálfara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2016 18:16 Baldur Ingi Jónasson. Vísir/Anton
Baldur Ingi Jónasson hefur stýrt sínum síðasta leik með kvennaliði Stjörnunnar í Domino´s deild kvenna í körfubolta. Baldur Ingi ákvað að stíga til hliðar en Stjörnukonur hafa aðeins unnið 3 af 18 deildarleikjum sínum á tímabilinu. Þetta var hans fyrsta tímabil með Garðabæjarliðið sem er nýliði í deildinni. Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar staðfesti þetta í yfirlýsingu sem karfan.is fékk senda til sín í dag. Þar kemur einnig fram að Stjarnan er ekki enn búið að finna eftirmann hans. Lokaleikur Baldurs Inga var tapleikur Stjörnunnar á heimavelli á móti Hamarsliðinu á miðvikudaginn en Hamar tryggði sér fimm stiga sigur með því að vinna lokaleikhlutann 29-16. Stjarnan situr hjá í umferðinni sem fer fram á morgun og liðið spilar ekki aftur fyrr en 29. febrúar vegna bikarúrslitaleiksins og frí vegna landsleikja. Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur því nægan tíma til að finna nýjan þjálfara enda eru 24 dagar í næsta leik liðsins. Stjarnan er þriðja félag deildarinnar til að skipta um þjálfara á tímabilinu en það hafa einnig Hamar og Keflavík gert.Yfirlýsing frá körfuknattleiksdeild Stjörnunnar: Baldur Ingi Jónasson hefur ákveðið að stíga til hliðar sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar. Leit að eftirmanni Baldurs er hafin svo nýr þjálfari geti nýtt hið langa frí sem framundan er en stelpurnar eiga næst leik 29. febrúar gegn Haukum. Stjórn kkd. Stjörnunnar þakkar Baldri kærlega fyrir samstarfið og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Þjálfari Dana mætti reiður með síma í viðtal: „Svona á fótbolti ekki að vera“ Fótbolti Eitt sinn fyrstur í nýliðavali NFL, nú rekinn úr sjálfboðastarfi fyrir fjárdrátt Sport Myndefni af ofsaveðrinu: Þrumur, eldingar, haglél og fossandi rigning á EM Fótbolti „Mér finnst þessi úrslit ekki eins mikill skandall og fólk talar um“ Fótbolti „Við erum svona fimm prósentum frá þeim stað sem við viljum vera á“ Fótbolti Liverpool afþakkaði boð Newcastle um Gordon fyrir Quansah Enski boltinn Faðir og sonur munu stýra syni og bróður Körfubolti Dagskráin í dag: Formúlan, HM í pílukasti og einn leikur í Bestu deild karla Sport Stelpurnar tryggðu sér sjöunda sætið Handbolti Keane bað Maguire afsökunar: „Ég fór yfir strikið“ Enski boltinn Fleiri fréttir Faðir og sonur munu stýra syni og bróður Segir að Golden State banni Wiggins að spila á ÓL LeBron stoltur af syninum: „Arfleið!“ James feðgarnir sameinast í liði Los Angeles Lakers Álftanes fær mikla hetju úr Texas háskólanum Kínverski risinn sem enginn getur stöðvað Tveir Frakkar valdir fyrstir í nýliðavali NBA Maðurinn sem missir ekki úr mínútu skiptir um lið í stóra eplinu Basile á Krókinn Sara Rún áfram í Keflavík næstu tvö árin Lakers staðfesta ráðningu JJ Redick Besti leikmaður 1. deildarinnar til liðs við Álftanes Reese bætti met þegar hún sökkti Clark í uppgjöri nýliðanna Maddie Sutton áfram í herbúðum Þórs Israel Martín þjálfar aftur Tindastól Aldrei verið dýrara að kaupa miða á kvennakörfuboltaleik Margir feitir bitar með lausa samninga Grindvíkingar búnir að finna sér nýjan bandarískan bakvörð Átján ára körfuboltastrákur sagður vera 2,36 metrar á hæð Skiptir um lið en ekki um heimavöll Íslenska vegabréfið skilar Danielle samningi hjá Euro Cup liði Hlaðvarpsfélagi LeBrons nýr þjálfari LA Lakers Nýliðarnir sækja sér styrk í Hafnarfjörðinn Hefur grætt tólf milljarða króna á því að vera rekinn Líst afar vel á Friðrik Inga og framlengdi um tvö ár Þjálfari Boston Celtics þarf að fara í aðgerð eftir tímabilið Pep Guardiola hjálpaði Boston Celtics að vinna NBA titilinn Gríðarleg fagnaðarlæti í Boston eftir sigur Celtics Þórsarar sækja Ólaf úr háskólaboltanum Jeff Van Gundy verður aðstoðarmaður Ty Lue hjá Clippers Sjá meira