Innlent

Kviknaði í snyrtistofu í Hafnarfirði

Gissur Sigurðsson skrifar
Slökkvistarf gekk greiðlega og náði eldurinn ekki frekari útbreiðslu.
Slökkvistarf gekk greiðlega og náði eldurinn ekki frekari útbreiðslu. Vísir/Stefán
Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var sent að að húsi við Dalshraun í Hafnarfirði upp úr klukkan tvö í nótt, þar sem mörg fyrirtæki eru til húsa.

Brátt kom í ljós að eldurinn var einangraður í hluta hússins þar sem snyrtistofa er til húsa, en þar logaði glatt og voru rúður sprungnar út. Slökkvistarf gekk greiðlega og náði eldurinn ekki frekari útbreiðslu.

Allt er ónýtt innanstokks í húsnæðinu sem brann. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×