Assad útnefnir nýjan forsætisráðherra Sýrlands Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2016 20:21 Imad Khamis hefur átt sæti í ríkisstjórn frá árinu 2011. Vísir/AFP
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti hefur útnefnt Imad Khamis, ráðherra rafmagnsmála, sem nýjan forsætisráðherra landsins. Hann hefur einnig veitt Khamis umboð til að mynda nýja ríkisstjórn í landinu. Í frétt SVT segir að Assad muni greina frá nöfnum fimm nýrra ráðherra á næstu dögum. Khamis er menntaður verkfræðingur og mun taka við embætti forsætisráðherra af Wael al-Halqi sem hefur gegnt embættinu frá árinu 2012. Þingkosningar fóru fram í Sýrlandi fyrir um tveimur mánuðum þar sem flokkur Assads og samstarfsflokkar hans náðu meirihluta, en framkvæmd kosninganna var harðlega gagnrýnd á alþjóðavettvangi. Khamis hefur átt sæti í ríkisstjórn frá árinu 2011, en ári síðar var hann settur á svartan lista ESB þar sem hann var ásamt öðrum sakaður um að bera ábyrgð á ofsóknum ríkisstjórnarinnar á hendur almennum borgurum. Borgarstríðið í Sýrlandi braust út árið 2011 og hafa um 280 þúsund manns týnt lífi síðan.
Tengdar fréttir Assad heitir því að endurheimta „hverja tommu“ Forseti Sýrlands sagði í ræðu sinni í gær að friðarviðleitni í Sýrlandi hefði misheppnast. 8. júní 2016 10:30 Skjöl benda til samvinnu Assads og ISIS Skjöl sem SKY fréttastofan hefur undir höndum og eru sögð koma frá ISIS vígasveitunum benda til þess að stjórnarher Assads Sýrlsandsforseta og ISIS hafi starfað saman á laun á vígvellinum. Til að mynda virðist stjórnarherinn hafa sæst á að ISIS menn fengu að koma hertólum sínum frá borginni Palmyra áður en Assad náði aftur tökum á henni og þá virðist hafa verið í gangi samningur um að ISIS léti Assad olíu í té í skiptum fyrir áburð. 3. maí 2016 09:04 Hvikult vopnahlé við lýði í Aleppo og Assad boðar "gjörsigur“ Tveggja sólarhringa vopnahlé tók gildi í sýrlensku borginni Aleppo í fyrrinótt. 6. maí 2016 07:00 Mest lesið 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd Innlent Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Innlent Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum Innlent List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Innlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Innlent Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar Erlent Fleiri fréttir Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Sjá meira
Assad heitir því að endurheimta „hverja tommu“ Forseti Sýrlands sagði í ræðu sinni í gær að friðarviðleitni í Sýrlandi hefði misheppnast. 8. júní 2016 10:30
Skjöl benda til samvinnu Assads og ISIS Skjöl sem SKY fréttastofan hefur undir höndum og eru sögð koma frá ISIS vígasveitunum benda til þess að stjórnarher Assads Sýrlsandsforseta og ISIS hafi starfað saman á laun á vígvellinum. Til að mynda virðist stjórnarherinn hafa sæst á að ISIS menn fengu að koma hertólum sínum frá borginni Palmyra áður en Assad náði aftur tökum á henni og þá virðist hafa verið í gangi samningur um að ISIS léti Assad olíu í té í skiptum fyrir áburð. 3. maí 2016 09:04
Hvikult vopnahlé við lýði í Aleppo og Assad boðar "gjörsigur“ Tveggja sólarhringa vopnahlé tók gildi í sýrlensku borginni Aleppo í fyrrinótt. 6. maí 2016 07:00