Rússar fá aftur að ferðast til Tyrklands sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 30. júní 2016 18:30 Pútín Rússlandsforseti hefur aflétt banni við leiguflugi til Tyrklands. vísir/epa
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur aflétt banni á skipulögðum gamanferðum frá Rússlandi til Tyrklands. Bannið var sett á eftir að Tyrkir skutu niður rússneska orrustuþotu á landamærum Sýrlands og Tyrklands í nóvember. Pútín setti viðskiptaþvinganir á Tyrki í ársbyrjun og sagðist ekki ætla að aflétta þeim fyrr en hann fengi formlega afsökunarbeiðni frá tyrkneskum stjórnvöldum. Afsökunarbeiðnin barst bréfleiðis í vikunni frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta. Þjóðhöfðingjarnir tveir ræddust í kjölfarið við símleiðis þar sem Pútín boðaði viðræður um viðskiptasamninga við Tyrki. Bannið hafði, að sögn tyrkneskra stjórnvalda, skaðleg áhrif á ferðaþjónustuna í landinu, en Tyrkland hefur lengi verið einn vinsælasti áfangastaður Rússa. Mikil spenna hefur verið í samskiptum ríkjanna síðustu mánuði. Tyrkir hafa ítrekað sakað Rússlandsher um að rjúfa lofthelgi Tyrklands, en Rússlandsher hefur aðstoðað Sýrlandsstjórn í baráttunni við vígamenn Íslamska ríkisins og aðra uppreisnarhópa í Sýrlandi. Rússar brugðust við með því að koma á viðskiptaþvingunum gegn Tyrkjum og stöðva allt leiguflug í gegnum ferðaskrifstofur frá Rússlandi til tyrkneskra ferðamannastaða.
Tengdar fréttir Erdogan biður Rússa afsökunar Tyrklandsher skaut niður rússneska herþotu á landamærum Sýrlands og Tyrklands í nóvember síðastliðinn. 27. júní 2016 14:13 Mest lesið 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd Innlent Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Innlent Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum Innlent List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Innlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Innlent Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar Erlent Fleiri fréttir Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Sjá meira
Erdogan biður Rússa afsökunar Tyrklandsher skaut niður rússneska herþotu á landamærum Sýrlands og Tyrklands í nóvember síðastliðinn. 27. júní 2016 14:13