Aldís Hilmarsdóttir verður ekki yfirmaður fíkniefnadeildar á ný Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. júní 2016 14:21 Aldís var yfirmaður deildarinnar R-2 sem rannsakar fíkniefnamál og skipulagða glæpastarfsemi. Vísir/Stöð2
Aldís Hilmarsdóttir, fyrrum yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, mun ekki snúa aftur í starf sitt hjá embættinu. Þetta kemur fram á vef RÚV. Aldís var flutt til í starfi í janúar síðastliðnum og mun hún hafa leitað til lögfræðings vegna þess. Tilfærsla Aldísar kom til á sama tíma og tveir starfsmenn fíkniefnadeildarinnar sættu rannsókn annars vegar ríkissaksóknara og hins vegar héraðssaksóknara vegna gruns um brot í starfi. Þeir voru báðir leystir frá störfum á meðan rannsókn á málunum fór fram.Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, færði Aldísi til í starfi. Vísir/ErnirAnnað málanna varðaði lögreglufulltrúa sem sakaður var um að veita grunuðum upplýsingar um fíkniefnamál sem voru til rannsóknar. Rannsókn leiddi ekki í ljós neina athugaverða háttsemi og hefur lögreglufulltrúa þessum verið boðið að koma aftur til starfa. Hann þáði það. Hitt málið er enn á borði ríkissaksóknara. Ráðið hefur verið í stöðu Aldísar og ekki eru fleiri breytingar í farvatninu hjá embættinu segir í skriflegu svari upplýsingafulltrúa lögreglunnar til RÚV. Aldís ku enn vera fjarverandi úr starfi og að ekki liggi fyrir hvenær hún snúi aftur. Aldís kvartaði við innanríkisráðherra yfir framkomu Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, stuttu áður en hún var færð til í starfi. Lögregla hafnar því að sú kvörtun hafi tengst tilfærslu Aldísar í starfi.
Tengdar fréttir Rannsókn á hendur lögreglufulltrúa felld niður Lögreglufulltrúi sem sakaður var um að hafa rangt við í samskiptum við upplýsingagjafa verður ekki ákærður fyrir brot í starfi. Ekkert saknæmt kom fram við rannsókn málsins. 9. júní 2016 09:15 Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent Fleiri fréttir Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Sjá meira
Rannsókn á hendur lögreglufulltrúa felld niður Lögreglufulltrúi sem sakaður var um að hafa rangt við í samskiptum við upplýsingagjafa verður ekki ákærður fyrir brot í starfi. Ekkert saknæmt kom fram við rannsókn málsins. 9. júní 2016 09:15