Lífið

15 í listrænu samstarfi í Lettlandi

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Ása Hauksdóttir og hluti hópsins, sem ferðast út, á góðri stundu rétt fyrir brottförina.
Ása Hauksdóttir og hluti hópsins, sem ferðast út, á góðri stundu rétt fyrir brottförina. Mynd/Hitt húsið
15 manna hópur skipaður meðlimum hljómsveitanna Milkhouse og Muscycle ásamt Götuleikhúsi Hins hússins ferðaðist í gær til Kuldiga í Lettlandi til að taka þátt í samvinnuverkefni styrktu af Nord­buk, samnorrænum sjóði sem veitir ungu og efnilegu listafólki tækifæri og Latvia Cultural Capital Fund.

„Þetta er alveg heljarinnar verkefni. Það verða 40 manns þarna, ungt listafólk frá Lettlandi, Svíþjóð, Noregi og Íslandi. Hugmyndin kemur eiginlega upp vegna þess að í fyrra var þarna úti hópur sem kallast Muscycle – ungt tónlistarfólk sem bjó öll hljóðfærin til úr því sem til féll; flöskum, töppum, steinum og hinu og þessu. Þau voru líka að spila mikið hérna á götum borgarinnar og eru færir tónlistarmenn í FÍH og klassísku námi. Þeirra starf varð til þess að þetta verkefni varð að veruleika,“ segir Ása Hauksdóttir, deildarstjóri menningarmála hjá Hinu húsinu sem ferðaðist út með hópnum.

Markmið verkefnisins er að í Kuldiga komi saman hópar af ungum listamönnum frá öllum löndunum og vinni saman að list tengdri umhverfismálum og endurvinnslu. Þessir hópar munu vinna í tveimur listasmiðjum – önnur mun sjá um list og hönnun og hin um tónlist og hreyfingu. Starf þessara smiðja verður svo kynnt áhorfendum á menningarhátíð í Kuldiga þann 16. júlí.

„Milkhouse og Muscycle munu spila þarna á listahátíðinni og fjórir aðilar úr Götuleikhúsi Hins hússins verða með sýningu. Í listsmiðjun­um verða með­al annars útsett íslensk lög og þau kynnt fyrir hinum og þau látin taka lagið með okkur. Svona verkefni eru yfirleitt ofboðslega lærdómsrík fyrir alla aðila því að þarna er verið að vinna þvert á menningarheima – bæði baltneska og norræna þar sem nálgun er mismunandi í listrænu starfi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×