Innlent

Hætta vegna ferðamanna á vegum

Nadine Yaghi skrifar
Mikil hætta getur skapast á vegum þegar ferðamenn stöðva til að dást að útsýni eða taka myndir.
Mikil hætta getur skapast á vegum þegar ferðamenn stöðva til að dást að útsýni eða taka myndir. Vísir/GVA
Mikið er um það að ferðamenn á bílaleigubílum úti á landi stöðvi bílinn skyndilega á miðri götu eða úti í vegarkanti til að taka myndir.

„Þetta þekkja allir leiðsögumenn mjög vel. Ferðamennirnir á bílaleigubílunum stoppa ýmist á miðri akbraut eða úti í kanti ef þeir sjá til dæmis hesta, kýr eða kindur, til að taka myndir,“ segir Kári Jónasson leiðsögumaður.

Kári bætir því við að þetta sé stórt vandamál á vegum landsins, sérstaklega fyrir þær sakir að þessu fylgir mikil hætta. „Þarna stoppa þeir bara bílinn og gefa engin merki eða neitt.“

G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að þeir hjá Vegagerðinni hafi miklar áhyggjur af þessu.

„Við vitum alveg af þessu vandamáli en það er heilmikið um þetta. Þess vegna erum við að láta taka út staði sem mögulega væri hægt að setja útskot á en það gæti hugsanlega dregið úr þessu,“ segir G. Pétur og bætir við að þetta sé ekki einungis vandamál á sumrin. Á veturna stöðvi menn bílana skyndilega þegar þeir sjái glitta í norðurljósin.

Íslandsstofa, í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki í landinu, stendur nú fyrir herferð sem á að hafa jákvæð áhrif á ferðahegðun á landinu en á dögunum var gefið út myndband á netinu með örnámskeiði um ferðaöryggi. Þar er farið í gegnum það hvernig eigi að aka um Ísland með öruggum hætti.

„Þetta er í raun kennslumyndband um það hvernig eigi að keyra um landið. Þetta hefur nú þegar fengið frábærar viðtökur frá fólki sem ferðast um landið eða sem er á leið til landsins,“ segir Daði Guðjónsson, verkefnastjóri á sviði ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.

Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×