„Dagur Sigurðsson er guðsgjöf fyrir þýskan handbolta“
Í greininni keppast blaðamaðurinn, leikmenn þýska landsliðsins og varaformaður þýska handknattleikssambandsins við að ausa lofi yfir íslenska þjálfarann sem er heldur betur orðinn vinsæll í stærsta handboltalandi heims.
Sjá einnig:Uppgjör íslensku þjálfaranna í dag | Sæti í undanúrslitum í húfi
Dagur hefur eytt síðustu tveimur dögum í að undirbúa stórleikinn við Guðmund Guðmundsson og danska landsliðið í kvöld, en sigur á meistaraefnum Danmerkur kæmi Þýskalandi nokkuð óvænt í undanúrslitin.
Dagur er sagður svo einbeittur að hann fer ekki einu sinni út að skokka á morgnanna eins og hann er vanur að gera. „Ég hef engan tíma fyrir það,“ segir Valsarinn.
Mikil meiðsli
Þýska landsliðið var í meiðslavandræðum fyrir Evrópumótið en hefur engu að síður staðið sig frábærlega og unnið fjóra leiki í röð eftir að tapa þeim fyrsta gegn Spáni.
Eftir síðasta leik og sigur gegn Rússlandi héldu áföllin áfram að dynja á Degi þegar ljóst var að tvær bestu skyttur þýska liðsins, Steffen Weinhold og Christian Dissinger, spila ekki meira á mótinu. Báðir eru leikmenn Kiel.
Sjá einnig:Dagur: Við gefumst ekki upp
„Við erum komnir að þröskuldinum með þessi meiðsli en þetta verður bara verðugt verkefni. Við munum keyra á þetta gegn Dönum,“ segir Dagur sem er ekkert í því að væla yfir meiðslum eða áföllum, að því fram kemur í greininni.
„Dagur leggur fyrir okkur leikáætlun og við fylgjum henni 100 prósent eftir,“ segir stórskyttan Finn Lemke sem tók við fyrirliðabandinu af Weinhold.
Dagur er lykillinn
Ekki var búist við miklu af þýska liðinu vegna meiðslanna, en það var í lang erfiðasta riðli mótsins með Slóvenum, Spánverjum og Svíum. Eftir tap í fyrsta leik sýndi Dagur meðal annars snilli sína gegn Svíum og gjörbreytti leik liðsins í hálfleik eftir að vera fjórum mörkum undir.
Sjá einnig:Strákarnir hans Dags fá svefntöflur
„Dagur er lykilinn að árangrinum. Hann er sá sem stýrir skipinu og hann er að standa sig frábærlega,“ segir Bob Hanning, varaforseti þýska handknattleikssambandsins, en hann er einnig framkvæmdastjóri Füchse Berlín þar sem Dagur starfaði áður við góðan orðstír.
Leikhlé Dags hafa vakið athygli, en í þeim er nokkuð augljóst hver er sá sem valdið hefur. Hann rífur upp taktíkspjaldið og messar duglega yfir sínum mönnum ef þeir eru ekki að standa sig.
Allt undir
„Hans framlag er mikið,“ segir markvörðurinn Andreas Wolff, sem segir leiðtogahæfileika Dags mikla. „Hann er maðurinn sem keyrir liðið áfram. Dagur er búinn að mynda mikla einingu innan liðsins.“
Allt er undir í kvöld þegar íslensku þjálfararnir mætast. Geti Dagur fellt Guðmund og danska liðið kemur hann Þýskalandi í undanúrslitin. Eitthvað sem fáum datt í hug að væri mögulegt.
Danir gerðu jafntefli við Svía í gærkvöldi sem breytti leik kvöldsins aðeins. Hefðu Danir unnið Svía hefði Þýskalandi dugað 2-3 marka tap gegn Guðmundi og lærisveinum hans en í staðinn verður Dagur að leiða sína menn til sigurs.
Tengdar fréttir
Uppgjör íslensku þjálfaranna í dag | Sæti í undanúrslitum í húfi
Guðmundur Guðmundsson og Dagur Sigurðsson mætast í þriðja sinn á stórmóti í dag og hvorugur þeirra náði að fagna sigri í hin skiptin. Báðir geta þeir komist með landslið sín í undanúrslitin á EM í Póllandi.
Dagur: Við gefumst ekki upp
Dagur Sigurðsson verður nánast með B-landsliðið sitt gegn Dönum á EM í handbolta.
„Án IHF værum við ekki hér“
Varaforseti þýska handknattleikssambandsins er afar þakklátt Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF.
Dagur verður án tveggja af sínum bestu mönnum í uppgjörinu gegn Guðmundi
Steffen Weinhold og Christian Dissinger eru meiddir og verða ekki meira með Þjóðverjum á EM.
Guðmundur fann upp á dínamíska tvíeykinu í hálfleik
Guðmundur Guðmundsson gerði breytingu í hálfleik í sigrinum gegn Spáni sem breytti öllu.
Strákarnir hans Dags fá svefntöflur
Læknir þýska landsliðsins vilja ekki að leikmenn séu andvaka eftir leiki.
Tvær íslenskar sigurgöngur í gangi á EM í handbolta
Tvö lið hafa unnið fjóra leiki í röð á Evrópumótinu í handbolta í Póllandi og svo vill til að það eru íslenskir þjálfarar við stjórnvölinn hjá þeim báðum.