Húsavíkurstofa hætt Sæunn Gísladóttir skrifar 8. apríl 2016 15:29 Húsavíkurstofa á vörumerkið „Húsavík the whale capital of Iceland“. Vísir/GVA
Húsavíkurstofa hefur hætt starfsemi. Húsvíkurstofa hefur um árabil sinnt rekstri upplýsingamiðstöðvar og tjaldsvæðis á Húsavík. Að auki hefur Húsavíkurstofa hýst Mærudaga sem er bæjarhátíð Húsvíkinga. Upphaflegur tilgangur Húsavíkurstofu var hins vegar að vera samnefnari fyrirtækja í auglýsinga- og kynningarmálum ásamt því að gera Húsavík að eftirsóknarverðum áfangastað í þjónustu- og byggðalegu tilliti segir í tilkynningu. Eftir ítarlegar viðræður við Norðurþing um verkefnaval og fjármögnun er ljóst að ekki er samhljómur á milli sveitarfélagsins og hagsmunaaðila á svæðinu um reksturinn. Norðurþing hefur í viðræðum að undaförnu lagt megin áherslu á rekstur tjaldsvæðis og klósettaðstöðu við höfnina en jafnframt ákveðið að draga sig út úr rekstri upplýsingamiðstöðvar á Húsavík eins og fram kemur í fundargerð Byggðaráðs Norðurþings 31. mars 2016. Mikil eining var meðal fundargesta á aðalfundi Húsavíkurstofu um að hætta allri starfsemi Húsavíkurstofu að svo stöddu. Var tillaga þess efnis samþykkt samhljóma. Að sögn Heiðars Halldórssonar nýkjörins formanns stjórnar Húsavíkurstofu sjá hagsmunaaðilar á svæðinu ekki tilgang í því að styrkja starfsemi á borð við tjaldsvæði eða klósettrekstur sem að öllu jöfnu væri betur niðurkomin annar staðar en hjá aðila sem á að sinna markaðssetningu svæðisins sem áfangastaðar. Húsavíkurstofa á vörumerkið „Húsavík the whale capital of Iceland“. Efnahagslegur ávinningur svæðisins vegna ferðaþjónustu er töluverður, en áætluð ferðaþjónustutengd velta fyrirtækja í Þingeyjarsýslum árið 2013 er metin 4,7 milljarðar króna. Kosin var ný stjórn sem hefur það hlutverk að losa Húsavíkurstofu frá öllum rekstrarlegum skuldbindingum en jafnframt skoða aðra möguleika sem gætu tryggt að Húsavíkurstofa gæti sinnt upphaflegum tilgangi sínum með sómasamlegum hætti.
Mest lesið Misboðið hvernig staðið var að uppsögnum hjá nýjum eiganda Viðskipti innlent Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Atvinnulíf Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Atvinnulíf Sekta Google um meira en allan pening heimsins Viðskipti erlent Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Samstarf „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ Atvinnulíf „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Atvinnulíf Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því Atvinnulíf Adidas og Ye sættast Viðskipti erlent Breytt skipurit og nýir stjórnendur hjá Sýn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Misboðið hvernig staðið var að uppsögnum hjá nýjum eiganda Engin tilkynning um hópuppsögn í október Horyn nýr forstjóri kísilverksmiðjunnar á Bakka Breytt skipurit og nýir stjórnendur hjá Sýn Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Bein útsending: Haustfundur Landsvirkjunar Ráðnir forstöðumenn hjá OK Reikna með tæplega þrjátíu milljarða minni fjárfestingu í Carbfix Verðbólga hjaðnar en kílómetragjaldið verður tekið inn í mælingu Ragnar, Pálmar og Haraldur til Verna Skellt í lás í Sambíóinu í Keflavík í kvöld Samkeppniseftirlitið í sáttaviðræðum við Festi Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brautskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Tekur við formennsku í hugverkaráði Samtaka iðnaðarins Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund Nikótínpúðar gætu hækkað um 300 kall með nýju gjaldi Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Fjögur félög Bergvins gjaldþrota Gera langtímasamning við eitt stærsta fyrirtæki Noregs Sjá meira