Gamli rígurinn milli Verzló og MR enn við lýði Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 8. apríl 2016 10:00 Guðrún Gígja, forseti NFVÍ, og Snærós, formaður Framtíðarinnar, eru sammála um það að keppnin í kvöld verði virkilega hörð. Vísir/Vilhelm
Í kvöld fer fram úrslitaviðureign í MORFÍs, eða mælsku- og ræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi. Verzlunarskóli Íslands etur kappi við Menntaskólann í Reykjavík en það hefur lengi verið mikill rígur á milli skólanna. Verzlunarskólinn vann keppnina fyrir ári en Menntaskólinn í Reykjavík hefur ekki unnið síðan árið 2012 og því verður spennandi að sjá hvort Verzló haldi bikarnum heima eða MR endurheimti hann eftir nokkurra ára fjarveru. Umræðuefnið í kvöld er vegferð mannkynsins og mælir Verzlunarskólinn með en Menntaskólinn í Reykjavík á móti.Spennandi umræðuefni „Þetta er mjög áhugavert umræðuefni og ég held að báðir pólar verði mjög skemmtilegir. Þetta verður hörð keppni enda eru bæði liðin mjög sterk. Ég veit að liðið okkar er búið að vera að æfa dag og nótt alla vikuna og það er búið að vera gaman að fylgjast með liðinu okkar þroskast á milli keppna. Því verður virkilega spennandi að fylgjast með keppninni í kvöld,“ segir Guðrún Gígja Sigurðardóttir, forseti nemendafélags Verzlunarskólans. Formaður Málfundafélags Menntaskólans í Reykjavík, Snærós Axelsdóttir, tekur í sama streng. „Ég er spennt fyrir þessu umræðuefni. Þetta verður mjög skemmtilegt og ég er mjög stolt af liðinu okkar, að vera komið svona langt. Þau eru búin að vera á fullu alla vikuna og hafa ekkert mætt í skólann. Þetta verður hörð og örugglega tæp keppni,“ segir Snærós en hún segir að stemningin í skólanum sé mikil. „Það hefur verið smá lægð hjá okkur í MORFÍs þannig að það eru allir gífurlega spenntir fyrir að vera í úrslitum. Við erum þó enn þá með langflesta sigrana í Gettu betur en við unnum þá keppni í tuttugasta skiptið núna í ár.“Rígurinn gerir keppnina meira spennandi Það er þekkt að mikill rígur er á milli skólanna en þeir eru tveir af elstu og virtustu menntaskólum á landinu. „Það hefði alltaf verið mikil spenna fyrir þessa keppni sama hvað, en ég held að hún sé mun meiri núna þar sem við erum að keppa á móti Verzló. Við elskum að hata hvort annað en þrátt fyrir að það sé gamall rígur á milli skólanna hefur samstarf okkar á milli alltaf gengið mjög vel,“ segir Snærós Guðrún Gígja tekur undir það að rígurinn milli skólanna geri keppnina enn þá meira spennandi. „Það er alltaf gaman að mæta MR. Þau unnu okkur á VÍ-MR deginum seinasta haust en við unnum MORFÍs í fyrra þannig að þetta verður mjög hörð keppni. Það er mikil stemning fyrir þessu í skólanum en það eru allir að keppast við að ná í miða.“ Keppnin fer fram í Háskólabíói í kvöld en búist er við því að það verði troðið út úr dyrum enda alltaf sterkur keppnisandi þegar þessir tveir skólar mætast.
Mest lesið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Það er töff að vera sauðfjárbóndi Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Elt á röndum með drónum Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Lífið Sigmundur birtist fyrirvaralaust Lífið Fleiri fréttir Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Sjá meira