Norsk yfirvöld orðin heit fyrir því að gefa Finnum fjall í afmælisgjöf Birgir Olgeirsson skrifar 28. júlí 2016 21:48 Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs. Vísir/EPA
Norsk yfirvöld eru að íhuga að gefa Finnum alfarið fjallið Halti fjall í tilefni af því að á næsta ári verða hundrað ár eru frá því finnska þjóðin fékk sjálfstæði. Fjallið Halti liggur á landamærum Noregs og Finnlands. Státar fjallið af tveimur tindum, annar tindurinn liggur innan landamæra Finnlands en hinn innan landamæra Noregs. Lægri tindurinn, Halditjakko er í 1.331 metra hæð og Finnlandsmegin en Halti, í 1.365 metra hæð, er 20 metrum fyrir innan landamæri Noregs. „Það eru nokkur formlegheit í vegi fyrir þessari ákvörðun og ég á enn eftir að gera upp hug minn,“ sagði Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK fyrir skemmstu. „Tindurinn yrði dásamleg gjöf frá nágrönnum okkar,“ sagði bæjarstjóri Kafjord, Svei Leiros sem hefur ásamt öðrum sveitarstjórnarmönnum skrifað stjórnvöld í Noregi bréf til að lýsa yfir stuðningi með þessar áætlanir Norðmanna. Norski jarðfræðingurinn Bjorn Geir Harsson er sagður hafa átt hugmyndina að þessari gjöf þegar hann komst að því í fyrra að 6. desember á næsta ári verða hundrað ár frá því Finnar fengu sjálfstæði frá Rússum. Harsson fannst kjörið að gefa Finnum tindinn því hann sagðist hafa orðið gáttaður þegar hann flaug yfir fjallið á áttunda áratug síðustu aldar og sá á hvernig landamæri Noregs og Finnlands liggja. Landamærin eru nánast bein lína sem var teiknuð á átjándu öld en Harsson hefur látið hafa eftir sér að sú lína sé órökrétt og ósanngjörn í garð Finna sem urðu þar með af sínum hæsta tindi.
Mest lesið Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Erlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Erlent Líkamsárás og eignaspjöll Innlent Fleiri fréttir Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Sjá meira