Íslenskar aðferðir til eftirbreytni í leikskólum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. apríl 2016 09:45 "Stuðningur íslenskra leikskóla hefur verið frábær frá byrjun og er kjarninn í þessu starfi. Gestirnir flakka milli þeirra og viða að sér þekkingu,“ segir Bryndís. Vísir/Vilhelm
Það verður einkum fjallað um áhrif þess að börn fái að læra á lífið í gegnum leik og tengsl við náttúruna,“ segir Bryndís Hreiðarsdóttir mastersnemi og ein þeirra sem heldur utan um málþing í Hannesarholti í dag milli 16.30 og 18.30 á vegum International Play Iceland. Fyrirlesarar á málþinginu eru Janet Lansbury uppeldisráðgjafi, Kristín Dýrfjörð, dósent við Háskólann á Akureyri og Tom Shea, leikskólastjóri í Bretlandi og meðstofnandi Play Iceland ásamt Huldu Hreiðarsdóttur. Hulda varð bráðkvödd í júní 2015 og systur hennar, Bryndís og Helga, halda uppi merkinu. Einnig koma fram í Hannesarholti þau Linda Mjöll Stefánsdóttir og Daníel Hjörtur sem reka hönnunarfyrirtækið Krukku. Þetta er fjórða ráðstefnan hér á landi á vegum Play Iceland. Sú fyrsta var 2013. „Tom Shea sér tækifæri í að koma með erlenda leikskólakennara hingað og sýna þeim hvernig íslensk börn læra á náttúrulegan hátt með því að leika sér úti. Líka hvernig þau þjálfast í samskiptum og lýðræðislegri hugsun og ákvarðanatöku. Leikskólastjórar sem hafa komið hingað á vegum Play Iceland undanfarin ár hafa gert breytingar í sínu starfi, breytingar sem þeim hafði aldrei dottið í hug að gengju upp, eins og að leyfa börnum að skammta sér sjálf á diskana og borða sjálf.“ Bryndís segir aðferðir íslensku leikskólanna ekki séríslenskar, heldur víða við lýði á Norðurlöndunum. En í Bretlandi og víðar í enskumælandi heimi hafi markaðshyggjan tekið yfir í áherslum leikskólanna og aukinn þrýstingur sé á að börn læri snemma að lesa, skrifa og reikna. Það sé mikið áhyggjuefni hjá Tom Shea. Börn fái ekki lengur rými til að þroskast með því að nota skynfærin, vera úti í náttúrunni og tengjast öðrum í frjálsum leik sem þeim sé eðlislægt.Leikir úti í náttúrunni eru hollir ungdómnum. Fréttablaðið/Stefán„Við höfum, sem betur fer, ekki enn farið út í að taka upp bóklegt nám hjá þriggja og fjögurra ára börnum,“ bendir hún á. Sex leikskólar opna dyr sínar þetta árið fyrir erlendum gestum ráðstefnunnar og bjóða þeim að taka þátt í starfinu. Fyrir það er Bryndís afar þakklát. „Stuðningur íslenskra leikskóla hefur verið frábær frá byrjun og er kjarninn í þessu starfi. Gestirnir flakka milli og viða að sér þekkingu. Íslenskir leikskólakennarar eiga heiður skilinn fyrir að deila kunnáttu sinni með þeim.“ Play Iceland er nú orðið að alþjóðlegri hreyfingu. „Fólk sem hefur komið hingað frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Ástralíu á undanförnum árum ár að kynna sér stefnu íslenskra leikskóla ætlar að útbreiða boðskapinn í sínum heimalöndum með sambærilegum ráðstefnum,“ segir Bryndís. „Við höfum, sem betur fer, ekki enn farið út í að taka upp bóklegt nám hjá þriggja og fjögurra ára börnum,“ bendir hún á. Sex leikskólar opna dyr sínar þetta árið fyrir erlendum gestum ráðstefnunnar og bjóða þeim að taka þátt í starfinu. Fyrir það er Bryndís afar þakklát. „Stuðningur íslenskra leikskóla hefur verið frábær frá byrjun og er kjarninn í þessu starfi. Gestirnir flakka milli og viða að sér þekkingu. Íslenskir leikskólakennarar eiga heiður skilinn fyrir að deila kunnáttu sinni með þeim.“ Play Iceland er nú orðið að alþjóðlegri hreyfingu. „Fólk sem hefur komið hingað frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Ástralíu á undanförnum árum að kynna sér stefnu íslenskra leikskóla ætlar að útbreiða boðskapinn í sínum heimalöndum með sambærilegum ráðstefnum,“ segir Bryndís.
Mest lesið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið Elt á röndum með drónum Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Lífið Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Lífið Það er töff að vera sauðfjárbóndi Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Sjá meira