Enski boltinn

Januzaj farinn til Sunderland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Januzaj hefur ekki náð að standa undir væntingum hjá United.
Januzaj hefur ekki náð að standa undir væntingum hjá United. vísir/getty
Man. Utd heldur áfram að losa sig við leikmenn til Sunderland.

Nú er United búið að lána Adnan Januzaj til félagsins út leiktíðina.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem fer til Sunderland frá Man. Utd í vikunni en Paddy McNair og Donald Love fóru þangað líka.

Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, virðist ekki hafa neina trú á Januzaj sem fær í staðinn að láta ljós sitt skína á leikvangi ljóssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×