Enski boltinn

Pogba byrjar leiktíðina í banni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pogba er hann var kynntur til leiks hjá Man. Utd.
Pogba er hann var kynntur til leiks hjá Man. Utd. vísir/getty
Dýrasti leikmaður allra tíma, Paul Pogba, mun ekki hefja feril sinn á ný með Man. Utd um helgina.

Pogba er nefnilega í leikbanni og má því ekki spila gegn Bournemouth á sunnudag.

Hvernig stendur eiginlega á því gætu margir spurt sig. Eðlilega enda nýtt tímabil að hefjast og Pogba kominn í nýtt lið í nýju landi.

Ástæðan er sú að hann var kominn í leikbann á Ítalíu vegna of margra gulra spjalda með Juventus og það bann flyst yfir á nýtt tímabil og yfir í nýtt land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×