Hundrað ára hús í miðborg Reykjavíkur rifið án leyfis Bjarki Ármannsson skrifar 7. apríl 2016 16:02 Rúmlega hundrað ára hús við Tryggvagötu 12 hefur verið rifið í leyfisleysi. Mynd/Reykjavíkurborg
Rúmlega hundrað ára hús við Tryggvagötu 12 hefur verið rifið í leyfisleysi. Byggingarfulltrúi Reykjavíkur hefur stöðvað framkvæmdir á reitnum vegna þessa og hafa eigendur sjö daga frest til að koma á framfæri skriflegum skýringum vegna málsins. Húsið var reist árið 1906 og er stundum nefnt Exeter-húsið.Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að samkvæmt gildandi deiliskipulagi sé heimilt að lyfta húsinu, breyta formi þaks eða gera viðbyggingu. Jafnframt var gefið út byggingarleyfi þann 16. mars sem veitti leyfi til að rífa hluta hússins til undirbúnings endurbóta á því og húsinu á lóðinni við hliðina, Tryggvagötu 14.Svona leit húsið út áður en það var rifið.Mynd/Reykjavíkurborg„Reykjavíkurborg lítur mjög alvarlegum augum á málið því með niðurrifi alls hússins var farið langt út fyrir gildandi byggingarleyfi,“ segir í tilkynningunni. „Niðurrif hússins var því óleyfileg framkvæmd, án allra tilskilinna leyfa og í andstöðu við gildandi deiliskipulag.“ Þegar vikufrestur eigenda til að koma skýringum og athugasemdum á framfæri er liðinn, mun Byggingarfulltrúi taka ákvörðun um það til hvaða aðgerða verður gripið af hálfu borgarinnar. Svo gæti farið að málið verði kært til lögreglu.
Mest lesið Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Ærandi þögn og klukkan tifar Innlent Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Innlent Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Erlent Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Innlent Leyfið heyrir sögunni til Innlent Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Innlent „Þau eru bara fyrir“ Innlent Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða Innlent Fleiri fréttir Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Sjálfstæðisfélög skora á Guðrúnu Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða „Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Sindri grunaður um fjárdrátt Hælisleitendur fá ekki inni í JL eftir allt saman Ærandi þögn og klukkan tifar Halla vill leiða VR áfram Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Leyfið heyrir sögunni til Sakleysi dætranna hafi gufað upp Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Segir Grænlendinga yndislega, harðduglega og útsjónarsama „Þau eru bara fyrir“ „Óvandaðir falsfréttamiðlar koma fram við fólk eins og fífl“ Hvammsvirkjun uppfylli ekki skilyrði Óhugnanlegt að hugsa til þess ef allt hefði ekki farið á besta veg Opið málþing Læknadaga: Næring allra, sérstaklega barna - fjárfesting fyrir framtíðina „Erfiðara að komast að rót vandans með þessum krökkum“ Efnaslys varð í grunnskóla í Reykjanesbæ Engar töfralausnir við hegðunarvanda barna Minkurinn dó vegna fuglaflensu Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn bjartsýnir eftir fund dagsins Af þingi í skólamál á Austurlandi Hafi ekki verið pínd dögum saman heldur vaknað með áverkana Efast um niðurstöðu héraðsdóms í Hvammsvirkjunarmáli Sjá meira