Enski boltinn

Giroud hetja Arsenal | Sjáðu markið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Oliver Giroud var hetja Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar hann tryggði liðinu mikilvægan sigur á West Bromwich Albion með marki undir lok leiksins.

Arsenal var fyrir leikinn í dag búið að tapa tveimur leikjum í röð og var að missa af lestinni í baráttunni um enska meistaratitilinn. Sigurinn í dag var því heldur betur kærkominn.

Skytturnar skutu púðurskotum að marki gestanna nær allan leikinn en það var á 87. mínútu sem franski turninn Oliver Giroud stangaði boltann í netið eftir sendingu frá Mesut Özil, 1-0. Þetta er fjórða mark Frakkans í deildinni í vetur.

Arsenal er eftir sigurinn með 37 stig í þriðja sæti deildarinnar, jafnmörg stig og Liverpool sem á leik til góða á morgun. Manchester City getur stokkið yfir Arsenal með sigri á Hull í síðdegisleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×