Hefur misst sextíu kíló: „Annað hvort að gera eitthvað í þessu, eða vera dauður fyrir fertugt“ Stefán Árni Pálsson skrifar 15. mars 2016 11:30 Gríðarlega flottur árangur hjá Benjamín. vísir „
Ég byrjaði að þyngjast í kringum tvítugt og það bara hætti síðan ekki,“ segir Benjamín Þórðarson, 38 ára, sem var orðinn 195 kíló þegar hann var sem þyngstur. Benjamín var gestur í þættinum Brennslan á FM957 í morgun og sagðist þar hafa horft fram á að verða farlama eða hreinlega í lífshættu. „Ég var alltaf að fara í megrun sem skilaði aldrei neinu. Þetta var orðið þannig að maður gerði ekkert í lífinu.“ Benjamín gjörbreytti um lífsstíl og var nýkominn úr ræktinni þegar Brennslubræður bjölluðu á hann. „Ég byrjaði að taka mig á um mitt ár 2012. Það var annað hvort að gera eitthvað í þessu, eða vera dauður fyrir fertugt. Ég var þyngstur 195 kíló,“ segir Benjamín sem er 182 sentímetrar á hæð. „Ef maður er bara alveg hreinskilin þá er það algjörlega ógeðslegt. Það sem bjargaði stoðkerfinu hjá mér var að ég er með mjög góðan íþróttabakgrunn úr frjálsum íþróttum og fótbolta og því eru hné og bak í lagi á mér í dag.“ Hann man vel eftir deginum þar sem hann ákvað virkilega að taka sig í gegn, það var 15. júlí 2013. „Þann dag ákvað ég að hætta borða nammi og hef ekki borðað nammi síðan. Núna er ég búinn að léttast um 59 kíló,“ segir Benjamín sem borðaði mikinn sykur á sínum tíma og sykurinn varð honum að falli. „Ég drakk einnig alveg gríðarlegt magn af gosi en það er ekkert svoleiðis í dag, ekkert sætabrauð, ekkert nammi og ekkert gos. Maður hefur oft heyrt að matarræðið sé svona 70% en ég vil meina að það sé svona 90%.“ Í dag æfir hann átta sinnum í viku en byrjaði fyrst á því að fara bara í sund.
Mest lesið „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Lífið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Það er töff að vera sauðfjárbóndi Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Elt á röndum með drónum Lífið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Fleiri fréttir Mjög algengt að foreldra minnki við sig til að aðstoða börnin við að kaupa fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Sjá meira