Viðskipti innlent

María Hrund nýr formaður ÍMARK

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
María Hrund Marinósdóttir, nýr formaður ÍMARK
María Hrund Marinósdóttir, nýr formaður ÍMARK
María Hrund Marinósdóttir, markaðsstjóri VÍS, var kjörin formaður ÍMARK á aðalfundi félagsins sem fór fram í dag. María Hrund hefur setið í stjórn samtakanna í þrjú ár og verið varaformaður þeirra undanfarið ár. Þá hefur hún starfað sem markaðsstjóri VÍS frá lok árs 2007.

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks var stofnað árið 1986 og er félag einstaklinga sem hafa áhuga á og/eða starfa við markaðsmál.

Fráfarandi formaður er dr. Friðrik Larsen en hann hefur gegnt embættinu undanfarin þrjú ár. Þar áður sat hann í stjórn félagsins í tvö ár.

Tveir nýir stjórnarmenn voru kosnir í stjórn félagsins, þeir Einar Benedikt Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tjarnargötunnar og Hreiðar Þór Jónsson, forstöðumaður á markaðssviði hjá Vífilfelli. Úr stjórninni fara þeir Ólafur Örn Nielsen og dr. Friðrik Larsen.

Stjórn ÍMARK er því skipuð eftirtöldum aðilum fyrir starfsárið 2016-2017:

· María Hrund Marinósdóttir, formaður ÍMARK og markaðsstjóri VÍS

· Ásta Pétursdóttir, framkvæmdastjóri ÍMARK

· Kristján Schram, markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni

· Guðjón Guðmundsson, meðeigandi og ráðgjafi hjá Manhattan Marketing

· Ágústa Hrund Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Sendiráðsins

· Hólmfríður Einarsdóttir, markaðsstjóri Íslandsbanka

· Hreiðar Þór Jónsson, forstöðumaður á markaðssviði Vífilfells

· Einar Benedikt Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tjarnargötunnar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×