Viðskipti innlent

Karlar í miklum meirihluta stjórnar SA

Snærós Sindradóttir og Sæunn Gísladóttir skrifa
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og formaður SA, ávarpar gesti á aðalfundi SA.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og formaður SA, ávarpar gesti á aðalfundi SA. vísir/vilhelm
Nýja stjórn Samtaka atvinnulífsins skipa sextán karlar en einungis fjórar konur. Auk þess er karl formaður stjórnar.

Stjórnin var kjörin á aðalfundi samtakanna sem fram fór þann 7. apríl síðastliðinn. Konum í stjórninni fækkaði um eina milli ára. Konur í stjórninni eru Guðrún Hafsteinsdóttir frá Kjörís, Margrét Sanders frá Strategíu, Rannveig Grétarsdóttir frá Hvalaskoðun Reykjavíkur og Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi.

Að sögn Björgólfs Jóhannssonar, formanns SA, tilnefna aðildarfélög SA, til að mynda Samtök iðnaðarins og Samtök félaga í sjávarútvegi, nöfn í stjórn og kjörstjórn fer yfir tilnefningarnar og svo er kosið. Fimm nýir stjórnarmenn voru kosnir inn í stjórnina á fundinum, allt karlmenn. Þeir eru Árni Sigurjónsson frá Marel, Eiríkur Tómasson frá Þorbirni, Hermann Björnsson frá Sjóvá, Hörður Arnarson frá Landsvirkjun og Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans.

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.
„Við erum ekki með reglur um kynjakvóta í stjórninni vegna þessa fyrirkomulags. Það getur alveg gerst að við förum að setja reglur um kynjakvóta. Þetta er ekki einföld ákvörðun, aðildarfélögin sem slík þurfa að koma að henni. Ég held þó að flest allir átti sig á þessu og sjái að það sé ástæða til að skoða þessi mál,“ segir Björgólfur Jóhannsson.

„Þetta er náttúrulega ekki góð ásýnd fyrir atvinnulífið en endurspeglar að það eru miklu fleiri karlar sem eiga og stjórna fyrirtækjum heldur en konur. Þetta er einn veiki hlekkurinn,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.

Kynjakvóti gildir um stjórnir fyrirtækja en hið sama á ekki við um félagasamtök eins og Samtök atvinnulífsins. „Þó að jafnréttislögin kveði á um að það beri að jafna stöðu kynjanna sem mest þá er engin kvótaskylda á félagasamtökum. Hinsvegar er þetta dapurleg ásýnd. Samtök atvinnulífsins eru mjög valdamikið afl í samfélaginu og það er greinilegt að karlarnir gefa það nú ekki eftir svo glatt.“

Krístín segir að samtökin vanti jafnréttisstefnu eða sýn í jafnréttismálum. „Þetta er eitthvað sem þarf að taka til umræðu að finnast það við hæfi að ásýnd þessara samtaka sé með þessum hætti. Þarna skortir jafnréttishugsun.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 12. apríl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×