Innlent

Tvöfalt fleiri kröfur um sviptingu forsjár

Snærós Sindradóttir skrifar
Flest börnin sem eru tekin af foreldrum sínum hafa verið vanrækt heima hjá sér samkvæmt upplýsingum frá Barnaverndarstofu.
Flest börnin sem eru tekin af foreldrum sínum hafa verið vanrækt heima hjá sér samkvæmt upplýsingum frá Barnaverndarstofu. vísir/vilhelm
Meira en tvöfalt fleiri foreldrar hafa verið sviptir forsjá barna sinna á síðustu tveimur árum en árin þar á undan. Barnaverndarnefndir hafa stóraukið kröfu sína um sviptingu forsjár fyrir dómi en stórt stökk má sjá í tölum Barnaverndarstofu árið 2014 sem heldur áfram árið 2015. Bráðabirgðatölur fyrir 2016 benda til að þessi fjölgun haldi áfram.

Frá 2004 til 2013 kröfðust barnaverndarnefndir þess að foreldrar væru sviptir forsjá tæplega þrettán­ barna á ári að meðaltali. Á því tímabili var að hámarki krafist forsjársviptingar vegna sautján barna.

Bragi Guðbransson forstjóri Barnaverndarstofu
Árið 2014 var hins vegar krafist forsjársviptingar yfir 34 börnum og árið 2015 yfir 33 börnum. Fyrstu sex mánuði þessa árs kröfðust barnaverndarnefndir forsjársviptingar yfir 14 börnum sem þykir benda til þess að svipaður fjöldi verði í ár og síðustu tvö ár.

Ástæða sviptinganna er oftast vanræksla barna en ekki ofbeldi á heimilum.

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir þróunina umhugsunarverða. „Ég fæ ekki betur séð en að þessar tölur gefi mjög sterkar vísbendingar um viðhorfsbreytingu innan barnaverndar. Ég held að þolmörkin séu að minnka og menn vilja sjá afdráttarlausa íhlutun í þessi mál.“

Bragi setur jafnframt þá kenningu fram að löggilding Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 2013 hafi skilað sér í bættu vinnulagi þar sem barnaverndarstarfsmenn séu nú skuldbundnir til að ræða við börn og fá fram þeirra sjónarmið í öllum málum er varða þau.

Þó sé ekki hægt að líta fram hjá því að starfsfólk barnaverndar kvarti undan vinnuálagi sem Bragi óttast að þýði minni tíma til stuðningsúrræða barnaverndar áður en gripið er til þess neyðarúrræðis sem svipting forsjár er. 

„Ég verð að játa að mér finnst þessi fjölgun ganga þvert gegn markmiðum barnaverndar sem er að varðveita fjölskylduna og efla foreldrafærni. En svo er hægt að túlka þetta á hinn veginn, að þetta sé vísbending um að barnaverndarkerfið sé að vakna upp af vondum dvala. Menn séu hreinlega ekki tilbúnir að horfa lengur upp á að mál malli í kerfinu í áraraðir.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×