Innlent

Ráðherra segir ávirðingar Álfheiðar glórulausar

Jakob Bjarnar skrifar
Kristján Þór segir að ekki sé flugufótur fyrir ásökunum Álfheiðar, ráðherrann furðar sig reyndar á skrifum hennar.
Kristján Þór segir að ekki sé flugufótur fyrir ásökunum Álfheiðar, ráðherrann furðar sig reyndar á skrifum hennar.
Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, sakar Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra um að hafa sett á, korteri fyrir kosningar, nánar tiltekið 16. október á reglugerð sem kveður á um kostnað sjúklinga í heilbrigðisþjónustu. „Þar með var heimilað – án lagastoðar, eins og ég kem að hér á eftir –  að taka innlagnargjald af sjúklingum á spítölum,“ segir Álfhildur í upphafi greinar sinnar sem hún birti á vef Kvennablaðsins og hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.

Kristján Þór furðar sig á skrifum Álfheiðar

Álfheiður segir ekki hafa farið mikið fyrir þessari breytingu, engin frétt hafi verið sett á heimasíðu velferðarráðuneytisins enda ekki nema von: „Heilbrigðisráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa tvívegis verið gerðir afturreka með áform sín um spítalaskattinn – fyrst 2009 og aftur 2013.“

Vísir bar þetta undir Kristján Þór sem furðar sig á þessum greinaskrifum Álfheiðar; segir hana misskilja reglugerðina algerlega og með ólíkindum sé að bera það uppá starfsfólk ráðuneytisins að gefa út reglugerð sem ekki stenst lög.

„Þvert á það sem Álfheiður heldur fram þá var markmiðið með reglugerð nr. 906/2016 að stöðva innheimtu gjalda á þá sjúklinga sem liggja lengur en sólarhring á bráðamóttökudeild vegna þess að ekki sé unnt að innrita þá á legudeild þar sem þeir ættu annars að liggja.“

Ráðherra mótmælir málflutningi Álfheiðar harðlega

Kristján Þór hefur farið yfir ávirðingar sem hann segir koma fram koma í grein Álfheiðar málið með sínu fólki í ráðuneytinu og niðurstaða hans er: „Það er rangt hjá Álfheiði að fyrrverandi ráðuneyti hennar setji reglugerð sem ekki standist lög. Reglugerðin er sett með stoð í 1. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar nr. 112/2008 og 37. gr. laga um heilbrigðisþjónustu.“

Í öðru lagi:

„Það er rangt hjá Álfheiði að verið sé að lauma inn skatti á sjúklinga," segir Kristján Þór. „Áætlað er að greiðslur sjúklinga muni lækka um 7-7,5 milljónir króna á ári vegna þessarar reglugerðarbreytingar og er ráðgert að tekjur spítalans muni lækka sem því nemur. Það er þá algert nýmæli í skattheimtu ef hún verður til þess að gjöld á skattþolann lækka.“

Gleymska eða misminni Álfheiðar

Og í þriðja lagi, svo áfram sé vitnað í Kristján Þór:

„Það er rangt hjá Álfheiði að nú sé verið sé að breyta reglum til að unnt sé að geta rukkað fyrir svokölluð ferliverk. Hún setti þær reglur sjálf.

Í ráðherratíð Álfheiðar Ingadóttur undirritaði hún m.a. reglugerð nr. 1078/2009. Í 12. grein þeirrar reglugerðar er fjallað um gjaldtöku fyrir komu til sérgreinalæknis á göngudeild sjúkrahúsa, það er að segja fyrir ferliverk. Þar segir meðal annars að sjúklingur skuli greiða gjald samkvæmt 1. mgr. og gildir einu þótt um næturdvöl kunni að reynast nauðsynleg í einstökum tilvikum. Þetta ákvæði hefur staðið óbreytt allt frá því þáverandi heilbrigðisráðherra Álfheiður Ingadóttir staðfesti það og er enn óbreytt.“

Kristján Þór segir að af framansögðu megi ljóst vera að ýmislegt í grein Álfheiðar byggi annað hvort á gleymsku eða misminni. „Það er miður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×