Skoðun

Lærdómurinn af Chilcot

Stefán pálsson skrifar

Um fátt hefur verið fjallað meira í fjölmiðlum síðustu sólarhringa en rannsóknarskýrslu þá sem kennd er við Sir John Chilcot. Vinnan við skýrsluna, sem fjallar um aðdraganda og framkvæmd Íraksstríðsins, tók sjö ár. Hún er ógnarmikil að vöxtum og nánast samfelldur áfellisdómur yfir herleiðangri þeirra Tony Blair og George W. Bush í Írak.



Bresk blöð hafa ekki vandað Blair kveðjurnar og forsíður flestra þeirra hafa verið undirlagðar af flennifyrirsögnum um blekkingarvef forsætisráðherrans fyrrverandi. Skiptir þar litlu þótt mörg þessara dagblaða hafi á sínum tíma stutt stríðsreksturinn með ráðum og dáð.

Tony Blair er í dag ærulaus maður og er það vel. En það væru stórkostleg mistök að draga þann eina lærdóm af skýrslunni miklu að Blair hafi farið með ósannindi, stýrst af óskhyggju eða látið stjórnast af annarlegum hvötum. Chilcot-skýrslan sýnir okkur nefnilega fram á takmarkanir þeirra stofnana sem mestu ráða á sviði hermála í heiminum.



Skýrslan leiðir í ljós hvernig njósnastofnanir og ráðuneyti á Vesturlöndum voru ófær um að meta rétt stöðu mála í Írak, sjá fyrir framvindu mála eða túlka fyrirliggjandi gögn. Svo virðist sem hasarmyndir frá Hollywood hafi verið notaðar sem heimildir um hvernig nýta mætti tæknibúnað og meintir sérfræðingar í innviðum fjarlægra ríkja hafi hvorki þangað komið né talað tungumál heimamanna.



Þetta er hinn raunverulegi lærdómur sem vert er að draga af skýrslu Chilcots. Tony Blair er útbrunninn stjórnmálamaður og rúinn trausti. Orðspor hans skiptir engu. En enn í dag treysta Vesturlönd á sömu stofnanir með sömu hugmyndafræði og sömu vanhæfni og leiddu til Íraksstríðsins 2003. Einfeldningsleg trú á hernaðarlegar íhlutanir í flóknum samfélögum er enn allsráðandi meðal Nató-þjóða, líkt og sjá hefur mátt í Líbýu, Jemen, Sýrlandi og Afganistan svo dæmi séu tekin. Áhrifalítil smáríki á borð við Ísland, sem studdu Íraksstríðsvitleysuna, hafa á engan hátt lagst í greiningu á utanríkisstefnu sinni til að fyrirbyggja að slík mistök endurtaki sig. Hvað sem öllum skýrslum líður virðast Vesturlönd staðráðin í að læra ekki af sögunni.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×