„Mourinho hefur ekki hugmynd um hvað er besta byrjunarlið United“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. september 2016 10:30 Þrjú töp í röð. vísir/getty „
Allir héldu að José Mourinho myndi mæta á Old Trafford ásamt Zlatan Ibrahimovic og Paul Pogba og hann myndi bara veifa töfrasprota og þá væri allt komið í lag.“ Þetta segir Jamie Redknapp, sérfræðingur Sky Sports um ensku úrvalsdeildina, í vikulegum pistli sínum í Daily Mail. Eftir að vinna fyrstu þrjá leiki tímabilsins er United búið að tapa þremur leikjum í röð. United fékk skell á útivelli gegn Watford í gær, 3-1, þar sem liðið spilaði skelfilega. Eftir að tapa Manchester-slagnum á heimavelli tapaði United svo gegn Feyenoord í Evrópudeildini í vikunni áður en kom að leiknum í gær. „Eftir þriðja tapið í röð eru brestirnir farnir að sjást. Mourinho heldur áfram að breyta liðinu og það lítur út fyrir að hann hafi ekki hugmynd um hvað er besta byrjunarlið United,“ segir Redknapp.„United vann fyrstu þrjá leiki tímabilsins með Juan Mata í byrjunarliðinu en það er ekki búið að innbyrða sigur eftir að Mourinho setti hann á bekkinn fyrir Manchester-slaginn. Sú ákvörðun virðist vera mistök.“ Fyrrverandi enski landsliðsmaðurinn er heldur ekki hrifinn af ummælum Mourinho um enska bakvörðinn Luke Shaw sem hann sagði ekki vera að læra af mistökum sínum. Shaw var frá næstum alla síðustu leiktíð vegna meiðsla eftir hryllilegt fótbrot. „Auðvitað gerir hann mistök. Hann var frá í heilt ár. Svona pillur frá stjóranum sínum er það síðast sem hann þarf á að halda. Þetta er eitthvað sem þið sáuð Sir Alex Ferguson aldrei gera en er aftur á móti það sem allir voru hræddir um að myndi gerast með Mourinho,“ segir Jamie Redknapp.
Enski boltinn Mest lesið Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Fótbolti Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli Fótbolti Stefán Árni stríddi Tomma með paparassa myndbandi frá sumrinu Körfubolti Logi fær ekki seinna markið skráð á sig Fótbolti Valsmenn rufu fjörutíu marka múrinn Handbolti Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“ Fótbolti Twitter um leikinn: Haltu bara áfram að skína Logi Fótbolti Van Dijk fékk rautt spjald í kvöld Fótbolti Stefán Teitur og Jón Dagur á leið í bann Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Sjá meira