
Á móti verðtryggingu
Framsóknarflokkurinn, flokkur Sigurðar Inga Jóhannssonar landbúnaðarráðherra, er einn harðasti andstæðingur verðtryggingar á Íslandi. Eitt af helstu kosningaloforðum flokksins fyrir síðustu kosningar var að verðtrygging yrði afnumin á Íslandi.
Lítið hefur þó þokast í átt að afnámi verðtryggingar og eru óbreyttir þingmenn flokksins orðnir langeygir eftir tillögum um breytingar. Í nýlegri fréttaskýringu Vísis kom fram að þingmenn hefðu rætt sín á milli að flytja sjálfir frumvarp um málið og gefast upp á biðinni eftir tillögum stjórnarinnar.
Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, gaf til kynna í þættinum Stjórnmálavísi 4. febrúar síðastliðinn að ekki væri full samstaða um afnámið innan ríkisstjórnarflokkanna. „Svo að maður sé alveg hreinskilinn þá held ég að það sé ekki sérstaklega mikill áhugi hjá samstarfsflokknum að afnema verðtryggingu,“ sagði hann.
Viðskiptaráð hvatti í dag Alþingi til að hafna samningum og sögðu að þröngir skammtímahagsmunir hafi verið hafðir að leiðarljósi í stað heildarhagsmuna við gerð samninganna. Endurskoðunarákvæði samninganna gætu þá aðeins leitt til aukinna niðurgreiðslna til landbúnaðarins.
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, hefur sagt samninginn ekki vera til hagsbóta fyrir bændur og neytendur og fela í sér glórulausan fjáraustur. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir hins vegar að verið sé að leitast við að bæta starfsaðstöðu bænda og gera þeim kleift að sækja fram.
Sérstök umræða verður um samninginn á Alþingi síðdegis í dag. Þingfundur hefst klukkan 15.00 á umræðum um störf þingsins en að þeim loknum tekur umræðan um búvörusamninginn við.