Viðskipti innlent

Kvika í samstarf við T. Rowe Price

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sigurður Atli, forstjóri Kviku, segir samstarfið gera Kviku kleift að auka verulega fjölbreytni fjárfestingakosta sem viðskiptavinum Kviku stendur til boða.
Sigurður Atli, forstjóri Kviku, segir samstarfið gera Kviku kleift að auka verulega fjölbreytni fjárfestingakosta sem viðskiptavinum Kviku stendur til boða. Vísir/Anton
Kvika hefur undirritað samstarfssamning við alþjóðlega eignastýringarfyrirtækið T. Rowe Price um sölu og dreifingu á sjóðum þeirra. T. Rowe Price er þekkt á heimsvísu fyrir mikið úrval sjóða í öllum eignaflokkum og mörkuðum, segir í tilkynningu.

Kvika hefur undanfarin tólf ár verið í góðu samstarfi við Credit Suisse sem er vel þekkt meðal fjárfesta á Íslandi. Með auknum heimildum til fjárfestinga erlendis hefur Kvika unnið að því að auka framboð erlendra fjárfestingarkosta fyrir viðskiptavini sína og er samstarfið við T. Rowe Price liður í því.

Viðskiptavinir Kviku hafa nú aðgang að fjölbreyttu úrvali skuldabréfa- og hlutabréfasjóða á heimsvísu í stýringu hjá T. Rowe Price og Credit Suisse.

Eignastýring Kviku er burðarás bankans og þar starfar bankinn á breiðum grunni og veitir sparifjáreigendum alhliða fjármálaþjónustu á innlendum og erlendum mörkuðum. Kvika var nýlega valin fremsta eignastýringarþjónusta á Íslandi þriðja árið í röð af breska fjármálatímaritinu World Finance. Við valið var meðal annars horft til árangurs, vaxtar, vöruþróunar, viðhorfs til áhættu og samfélagslegrar ábyrgðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×