Viðskipti innlent

106 þúsundir farþegar flugu með WOW í maí

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sætanýting WOW air í maí var 85 prósent.
Sætanýting WOW air í maí var 85 prósent. vísir/vilhelm
WOW air flutti 106 þúsund farþega til og frá landinu í maí eða um 115 prósent fleiri farþega en í maí árið 2015. Sætanýting WOW air í maí var 85 prósent en sætanýting í fyrra á sama tímabili var 81 prósent.

Er þetta aukning um fjögur prósentustig þrátt fyrir mikla framboðsaukningu. Sætanýting WOW air jókst milli ára þrátt fyrir 109 prósent aukningu á sætaframboði í maí en félagið hóf áætlunarflug í þessum mánuði til Montréal, Toronto, Stokkhólms og Bristol.

Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 110 prósent í maí frá því á sama tíma í fyrra.  Það sem af er árinu hefur WOW air flutt um 379 þúsund farþega en það er 114 prósent aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður.

WOW air jók markaðshlutdeild sína í maí um 54 prósent úr 13 prósent hlutdeild af heildarfarþegum á Keflavíkurflugvelli í maí 2015 í 20 prósent hlutdeild nú í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×