John Oliver: „Farðu í rassgat, Oprah“ Samúel Karl Ólason skrifar 6. júní 2016 10:30 John Oliver gefur níu þúsund einstaklingum 15 milljónir.
John Oliver, þáttastjórnandi Last Week Tonight, fjallaði í gær um innheimtufyrirtæki í Bandaríkjunum og starfsemi þeirra. Um er að ræða fyrirtæki sem kaupa ódýr skuldasöfn sem bankar og stofnanir hafa afskrifað og rukka þau. Lánin eru oft á tíðum jafnvel fyrnd og ljóst er að fyrirtækin beita harkalegum aðferðum við innheimtuna. Til að varpa ljósi á hve auðvelt það væri í rauninni að stofna innheimtufyrirtæki tók starfsfólk Last Week Tonight sig til og stofnaði slíkt fyrirtæki. Það var gert í gegnum internetið og kostaði 50 dali að skrá fyrirtækið í Mississippi. Fyrirtækið var látið heita Central Asset Recovery Professionals og var sett upp smávægileg heimasíða. Skömmu seinna bauðst þeim að kaupa rúmlega 15 milljóna dala skuldir vegna læknakostnaðar frá Texas fyrir slikk. John Oliver og félagar ákváðu að kaupa þessar skuldir og í stað þess að hringja í þá níu þúsund einstaklinga sem skulduðu þeim og reyna að rukka það, var ákveðið að gefa skuldirnar eftir. Um er að ræða stærstu gjöf sem hefur verið gefin í sjónvarpsþætti. Oprah gaf einu sinni áhorfendum sínum bíla og er það talið hafa kostað átta milljónir dala. „Farðu í rassgat, Oprah,“ sagði John Oliver við lok þáttarins.Last Week Tonight er sýndur á Stöð 2 á mánudagskvöldum.
Mest lesið Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira