Enski boltinn

Sjáðu frábært jöfnunarmark Jóns Daða

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Daði í leiknum í dag.
Jón Daði í leiknum í dag. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Wolves í dag, en markið hans var einkar fallegt.

Selfyssingurinn var að spila sinn fyrsta leik frá því að hann kom til enska B-deildarliðsins frá þýska B-deildarliðinu Kaiserslautern.

Byrjunin hjá Jón Daða var ekki af verri endanum því hann jafnaði metin í 2-2 eftir að Wolves hafi lent 2-0 undir í fyrri hálfleik gegn Rotherham í fyrstu umferð ensku B-deildarinnar.

Þetta frábæra mark má sjá í myndbandinu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×