Erlent

Ráðist að lögreglumönnum með sveðju

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Tveir lögreglumenn særðust í sveðjuárás í Belgíu fyrr í dag.
Tveir lögreglumenn særðust í sveðjuárás í Belgíu fyrr í dag. Vísir/EPA
Tveir lögreglumenn særðust þegar árásarmaður réðst að þeim vopnaður sveðju í belgísku borginni Charleroi fyrr í dag.

Árásarmaðurinn var skotinn og er særður samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Charleroi. Er hann sagður hafa kallað „Allahu Akbar“ eða „Guð er mikill“ á arabísku áður en hann réðst til atlögu fyrir utan höfuðstöðvar lögreglunnar í Charleroi.

Búið er að loka af svæðið í kringum lögreglustöðina en sumir þeirra sem áttu þátt í hryðjuverkaárásunum í París á síðasta ári og Brussel á þessu ári héldu til í Charleroi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×