Útlendingastofnun hefur frestað brottflutningi Morteza Songolzadeh frá Íslandi. Morteza er 36 ára gamall hælisleitandi frá Íran en flytja átti hann til Frakklands á morgun. Þetta staðfestir Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður Morteza í samtali við Vísi en fyrst var greint frá málinu á vef Reykjavík Grapevine.
Eva Dóra segir að þau hafi ekki fengið að vita af ákvörðun Útlendingastofnunar fyrr en undir kvöld og hafi því enn ekki undir höndum rökstuðning Útlendingastofnunar fyrir ákvörðuninni. Á morgun mun málið skýrast frekar um það hver réttarstaða Morteza er núna.
Morteza býður dauðadómur í heimalandinu fyrir að hafa tekið upp kristna trú. Ítarlega hefur verið fjallað um mál hans í fjölmiðlum og vakti hann til að mynda mikla athygli þegar Íslenska þjóðfylkingin stóð fyrir mótmælum á Austurvelli en þá fór Morteza til mótmælendanna og bauð þeim upp á kaffi.
Senda átti Morteza burt á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd útlendingamála staðfesti þann úrskurð Útlendingastofnunar en lögmaður Morteza kvartaði til umboðsmanns Alþingis vegna málsmeðferðarinnar sem hún telur ekki í samræmi við lög, að því er fram kemur í umfjöllun Grapevine. Morteza sagði í samtali við Fréttablaðið í ágúst síðastliðnum að hann teldi yfirgnæfandi líkur á því að vera sendur aftur til Írans frá Frakklandi, og óttast hann því um líf sitt.
Vísir hefur ekki náð tali af Morteza í kvöld en í samtali við Grapevine kveðst hann mjög hissa á ákvörðun Útlendingastofnunar nú um að fresta brottflutningi hans frá landinu. Hann segist hafa verið búinn að pakka niður öllu dótinu sínu enda hafi hann búist við því að vera að fara af landi brott á morgun.
