Erlent

Fleiri karlar styðja SD

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Flokkur Jimmie Åkessons nýtur stuðnings um tvöfalt fleiri karla en kvenna.
Flokkur Jimmie Åkessons nýtur stuðnings um tvöfalt fleiri karla en kvenna. NORDICPHOTOS/AFP
Tvöfalt fleiri karlar en konur styðja Svíþjóðardemókrata, SD, samkvæmt könnun greiningafyrirtækisins Novus eða 23,5 prósent á móti 11,9 prósentum. Almennt er lítill munur á stuðningi kynjanna við aðra flokka.

Í fréttatilkynningu frá greiningafyrirtækinu sem sænskir fjölmiðlar birta segir að reyndar njóti Umhverfisflokkurinn talsvert meiri stuðnings kvenna eða karla eða 6,9 prósent á móti 2,9 prósentum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×