Fótbolti

Harpa markahæst í undankeppninni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Harpa fagnar einu af 10 mörkum sínum í undankeppninni.
Harpa fagnar einu af 10 mörkum sínum í undankeppninni. mynd/ksí/hilmar þór
Enginn leikmaður skoraði fleiri mörk í undankeppni EM 2017 en Harpa Þorsteinsdóttir.

Stjörnukonan gerði 10 mörk í fyrstu sex leikjum Íslands í undankeppninni en hún missti af síðustu tveimur leikjunum þar sem hún er barnshafandi.

Ada Hederberg frá Noregi, besti leikmaður Evrópu 2016, og Jane Ross frá Skotlandi skoruðu einnig 10 mörk í undankeppninni en í átta leikjum.

Ross fór illa með íslenska liðið í gærkvöldi en hún skoraði bæði mörk Skota í 1-2 sigri á Laugardalsvellinum. Þrátt fyrir tapið vann Ísland riðil 1.

Sjá einnig: Lítil skán á nær fullkominni undankeppni

Dagný Brynjarsdóttir var næstmarkahæst í íslenska liðinu í undankeppninni en hún skoraði sjö mörk í átta leikjum. Margrét Lára Viðarsdóttir kom þar á eftir með fimm mörk.

Alls skoraði Ísland 34 mörk í undankeppninni. Aðeins Spánn (39) og Þýskaland (35) skoruðu fleiri mörk en íslenska liðið.


Tengdar fréttir

Guðbjörg: Svekkjandi að fá á sig mark

Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður íslenska liðsins, þurfti loks að játa sig sigraða þegar Jane Ross skallaði boltann framhjá henni á 25. mínútu í leiknum gegn Skotlandi í kvöld.

Freyr: Er keppnismaður og vildi vinna

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, var svekktur með tapið fyrir Skotlandi í kvöld en sagði það ekki skyggja á frábæra frammistöðu Íslands í undankeppni EM 2017.

Dagný: Vonandi það sem koma skal í íslenskum kvennafótbolta

Dagný Brynjarsdóttir, miðjumaður Íslands, sagði að það væru blendnar tilfinningar í leikslok, en Ísland tapaði 2-1 fyrir Skotlandi í kvöld. Liðið endaði þó efst í riðlinum og er á leið á EM í Hollandi næsta sumar.

Umfjöllun og myndir: Ísland - Skotland 1-2 | Toppsætið þrátt fyrir tap

Ísland tapaði fyrir Skotlandi, 2-1, í lokaleik kvennalandsliðið í riðlinum fyrir undankeppni EM í Hollandi næsta sumar, en Ísland hafði þegar tryggt sig inn á mótið. Þrátt fyrir tapið í dag hélt Ísland toppsætinu, en liðið tapaði einungis einum leik í riðlinum og það var leikurinn í kvöld.

Hallbera: Verðum að sætta okkur við að vinna riðilinn

Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri bakvörður Íslands, segir að liðið verði bara að sætta sig við að hafa unnið riðilinn og að liðið geti vel við unað, þrátt fyrir tap gegn Skotum á Laugardalsvelli í kvöld, 2-1.

Margrét Lára: Verðum að sjá stóru myndina og vera glaðar

Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, segir að liðið megi bera höfuðið hátt þrátt fyrir tap gegn Skotlandi 2-1 í síðasta leik liðsins í riðlinum fyrir undankeppni EM, en liðið hefur tryggt sér sæti á mótinu sem fer fram í Hollandi næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×