
Forsetakosningar
Svigrúm forseta
Það er klárt að gildandi stjórnarskrá veitir sitjandi forseta á hverjum tíma töluvert svigrúm, einnig til að sinna sínum hjartans málum. Til að mynda þá valdi Vigdís Finnbogadóttir að beita kröftum sínum í þágu íslenskrar tungu og skógræktar. Ólafur Ragnar hefur aftur á móti lagt mikla vinnu í málefni norðurslóða og jarðhitamál á alþjóðavísu.
Með því hefur Ólafur Ragnar sannarlega fært alþjóðamál inn fyrir verkahring embættisins eins og Össur bendir á. Það að forseti beri sín hjartans mál á alþjóðleg torg er þó ekki vandkvæðalaust. Ekki síst ef forseti talar utanríkisstefnu sitjandi ríkisstjórnar í mót. Um þetta var töluvert rætt í aðdraganda forsetakosninganna 2012. Fengu frambjóðendur þá iðulega spurningar um hvort þeim þætti eðlilegt að reka eigin utanríkisstefnu eða fylgja utanríkisstefnu ráðandi ríkisstjórnar.
Að því sögðu þá er það val sitjandi forseta á hverjum tíma hvort og þá í hvaða mæli hann sækist eftir því að reka sín mál á alþjóðavettvangi. Velji forseti einmitt það þá verður viðkomandi sannarlega að geta fótað sig í alþjóðlegu umhverfi og lagt fram mál sín á trúverðugan hátt, að hafa málefnalega burði eins og Össur orðar það.
Nýr forseti verður að sjálfsögðu að geta staðið sína vakt í samskiptum við þjóðir og gætt hagsmuna Íslands. Hæfileikar til rökræðna byggja að miklu leyti á hæfileikum til að hlusta á viðmælendur og nýta þeirra orð áfram í eigin málatilbúning. Án efa er þetta eiginleiki sem góður stjórnmálamaður býr að en er þó ekki eingöngu bundinn þeirri stétt. Þar af leiðir að sú mynd sem Össur dregur upp, að nýr forseti ætti að hafa pólitískan bakgrunn, þykir mér lítt raunhæf. Reynsla úr utanríkispólitík hlýtur jú alltaf að vera til bóta. Þó tel ég hæfileikann meiri að skilja mannlegt eðli og pólitísk ferli ásamt því að hafa skilning á mismunandi menningu ríkja. Það er haldgóður eiginleiki nýs forseta.
Málskotsréttur og óvirkjaðar greinar gildandi stjórnarskrár
Á málskotsréttinum eru tvær hliðar. Það að beita því valdi sem gefið er getur verið jafngilt þeirri ákvörðun að beita því ekki. Samanber ákvörðun Vigdísar Finnbogadóttur um að staðfesta lög um Evrópska efnahagssvæðið í stað þess að leggja það í dóm þjóðarinnar.
Þó Ólafur Ragnar hafi virkjað málskotsréttinn í 26. grein stjórnarskrárinnar þá hefur hann ekki beitt öðrum greinum stjórnarskrárinnar sem gætu haft umtalsverð áhrif á stjórnskipun landsins. Þar má nefna 25. grein, að leggja fram fyrir Alþingi frumvörp til laga og annarra samþykkta. Sama á við um 28. grein, að gefa út bráðabirgðalög. Munum að áður en Ólafur Ragnar virkjaði málskotsréttinn þá þótti hann „dautt ákvæði“ í stjórnarskránni. Það segir okkur að nýr forseti gæti nýtt ákvæði í 26. og 28. grein ef svo bæri undir. Ættu frambjóðendur að gera grein fyrir sýn sinni á þessi ákvæði.
Tillögur Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá
Ef við gefum okkur að ný stjórnarskrá verði að veruleika og í meginatriðum eins og tillögur Stjórnlagaráðs gera ráð fyrir, má færa rök fyrir því að um umtalsverðar breytingar á grundvelli stjórnskipunar sé að ræða. Össur rekur breytingar á hlutverki forseta varðandi tilnefningu á forsætisráðherra, þar sem forseti skal ráðfæra sig við þingflokka og þingmenn varðandi tilnefningu og síðan bera undir þingið sem kýs um tillöguna.
Þó þessi nýmæli séu í tillögum Stjórnlagaráðs þá hlýtur það að vera fremur ólíklegt að forseti leggi fram tillögu um forsætisráðherra á þingi án þess að nokkuð öruggt sé að viðkomandi hljóti ríkan stuðning. Væntanlega hefur forseti gert sér svo glögga mynd af stöðu mála gegnum viðtöl við þingflokka og þingmenn.
Í dag hefur forseti gott svigrúm til stjórnarmyndunar samkvæmt gildandi stjórnarskrá. Það mundi ekki breytast mikið að mínu mati þó að nýjar tillögur Stjórnlagaráðs næðu fram að ganga. Því að í brothættu umhverfi þar sem annaðhvort eru til staðar fleiri möguleikar á stjórnarmeirihluta eða þá vöntun á slíku hljóta kröfur til forseta alltaf að vera miklar. Mannlegt innsæi, hæfileikar til málamiðlunar, ríkir leiðtogahæfileikar hljóta þá að vera aðkallandi. Þeir eiginleikar eru jafn mikilvægir í fari forseta nú og í framtíðinni.
Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 26. maí.
Skoðun

Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn
Jón Ólafur Halldórsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Glötuðu tækifærin
Guðmundur Ragnarsson skrifar

Hnignun samgangna og áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf
Sverrir Fannberg Júliusson skrifar

Ísland á tímamótum – Við skulum leiða gervigreindaröldina!
Sigvaldi Einarsson skrifar

Hvað eru Innri þróunarmarkmið?
Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar

Hagur okkar allra
Steinþór Logi Arnarsson skrifar

Áskoranir næstu áratuga kalla á fjármögnun rannsókna
Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar

Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem formann – en hvers vegna?
Karl Guðmundsson skrifar

Smíðar eru nauðsyn
Einar Sverrisson skrifar

Nýsköpunarlandið
Elías Larsen skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar – Móse og boðorðin 10
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sérfræðingarnir
Sölvi Tryggvason skrifar

Af góða fólkinu og vonda fólkinu í VR og stóra biðlaunamálinu
Arnþór Sigurðsson skrifar

Venjuleg kona úr Hveragerði
Árni Grétar Finnsson,Björg Ásta Þórðardóttir skrifar

Hljóð og mynd fara ekki saman
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ertu að grínast með þinn lífsstíl?
Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Guðrún Hafsteins er leiðtogi
Eiður Welding skrifar

Öflugur iðnaður, sterkt samfélag – Guðrún Hafsteinsdóttir veit hvað þarf
Hópur iðnaðarmanna skrifar

Óvissuferð Hafnfirðinga í boði Orkuveitu Reykjavíkur
Kristín María Thoroddsen skrifar

Herleysið er okkar vörn
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Raddir, kyn og kassar
Linda Björk Markúsardóttir skrifar

Færni á vinnumarkaði – ný námsleið fyrir fólk með þroskahömlun
Helga Gísladóttir skrifar

Framtíðarfyrirkomulag biðlauna formanns VR
Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, fyrri grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Rödd friðar á móti sterkum her
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Leiðtogi nýrra tíma
Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?
Birgir Orri Ásgrímsson skrifar

Tollflokkun rifins osts: Rangfærslur og staðreyndir
Erna Bjarnadóttir skrifar

Framtíð löggæslu fínpússuð í tilraunastofunni Gaza
Kristján Þór Sigurðsson skrifar