Fótbolti

Jafntefli í fyrsta leik Viðars í Ísrael

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jordi Cruyff og Viðar við undirskrift á dögunum.
Jordi Cruyff og Viðar við undirskrift á dögunum. vísir/Maccabi Tel Aviv
Viðar Örn Kjartansson fór strax í byrjunarlið Maccabi Tel Aviv í þriðju umferð ísraelsku úrvalsdeildarinnar en Viðar lék í 87. mínútur í svekkjandi jafntefli á heimavelli gegn Beitar Jerusalem.

Beitar Jerusalem komst yfir snemma leiks en heimamenn náðu að svara með mörkum frá Nosa Igiebor og Tal Ben Heim en Ben Haim skoraði af vítapunktinum á 72. mínútu.

Viðar fór af velli á 87. mínútu en gestirnir frá Jerúsalem náðu að jafna metin á 95. mínútu leiksins með síðustu spyrnu leiksins.

Næsti leikur Maccabi er gegn Zenit st. Petersburg í Evrópudeildinni á heimavelli á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×