Fótbolti

Hjörtur fór meiddur af velli

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hjörtur í baráttunni við landa sinn, Kjartan Henry Finnbogason, fyrr á leiktíðinni.
Hjörtur í baráttunni við landa sinn, Kjartan Henry Finnbogason, fyrr á leiktíðinni. vísir/getty
Hjörtur Hermannsson, miðvörður Bröndby, fór meiddur af velli í leik Bröndby og Aalborg á 24. mínútu en fram kemur á Twitter að farið hefði verið með hann upp á spítala í nánari rannsóknir.

Hjörtur var í byrjunarliði Bröndby sem er taplaust eftir sjö umferðir og komst Bröndby yfir á áttundu mínútu.

Hjörtur fór af velli á 22. mínútu en á Twitter er greint frá því að meiðslin séu á öxl og að það hefði verið farið með hann undir eins á næsta sjúkrahús.

Er þetta mikið áfall fyrir Hjört sem var búinn að byrja sex leiki í röð í hjarta varnarinnar hjá Bröndby.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×